„Núna er þetta bara upp á við“
Það var kampakátur Þorgeir Ólafsson sem mætti í viðtal til Huldu Geirsdóttur að loknum A-úrslitum í fimmgangi í Meistaradeild Líflands í gærkvöldi.
Hann hafði líka yfir miklu að gleðjast, því hann stóð efstur í gær á hryssunni Blíðu frá Bergi, sem er á sjöunda vetri undan Skýr frá Skálakoti og Rót frá Bergi. Ræktendur hennar og eigendur eru hjónin á Bergi þau Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir.
Blíða er með háan kynbótadóm með aðaleinkunnina 8,62 en keppnisreynsla hennar var ekki mikil fyrir kvöldið. Þá keypti Þorgeir sig inn í keppnina og var því uppboðsknapi, en þetta var sögulegur sigur í Meistaradeild Líflands því slíkt hefur ekki gerst áður að knapi sem ekki keppir fyrir lið vinni grein.
Hann fer yfir þetta allt saman í góðu viðtali sem horfa má á hér að neðan.
„Núna er þetta bara upp á við“
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Áhugamannadeild Norðurlands í beinni á EiðfaxaTV í dag!