Parafimi og slaktaumatölt í Suðurlandsdeild Eques

  • 23. febrúar 2026
  • Fréttir

Sigurvegarar í Parafimi á síðasta tímabili voru þau Ólafur Þórisson og Sarah Maadgaard Nielsen.

Mótið hefst klukkan 18:30 en Rangárhöllin opnar fyrir gesti klukkan 17:30.

Þriðjudagskvöldið 24.febrúar fer fyrsta mótið í Suðurlandsdeild Eques fram í Rangárhöllinni á Hellu. Mótið hefst klukkan 18:30 en húsið opnar 17:30. Líkt og fram kom í viðtali hér á Eiðfaxa við Heklu Katharínu, formann stjórnar Suðurlandsdeildarinnar, að þá er fólk hvatt til þess að mæta í höllina og eiga skemmtilega kvöldstund. Fyrir þá sem ekki komast er mótið sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.  Aðalstyrktaraðili kvöldsins er Coca Cola og býður öllum frítt inn á keppnina.

Á þessu fyrsta keppniskvöldi er keppt í tveimur greinum annars vegar Parafimi og hins vegar Slaktaumatölti.  Í þessar greinar senda liðin alls fjóra knapa til leiks, atvinnu- og áhugamaður mynda par sem keppa í parafiminni og sýna þar ýmsar listir. Í slaktaumatöltinu eru það svo einn atvinnumaður og einn áhugamaður sem keppa og er riðið til úrslita í hvorum flokki fyrir sig.

Á síðasta keppnistímabili voru það hjónin Ólafur Þórisson og Sarah Maadgaard Nielsen sem unnu parafimina, þau eru skráð til leiks í ár og ætla sér eflaust að endurtaka leikinn. Þá er þar einnig að finna parið sem náði þriðja sætinu í fyrra, Stellu Sólveigu Pálmarsdóttur og Aasu Ljungberg. Í þessari grein geta óvæntir hlutir alltaf gerst og mega pörin ekki við því að gera mikil mistök þannig að dýrmæt stig tapist. Með því að smella hér má kynna sér reglurnar í Parafimi nánar.

Þegar horft er til keppni í slaktaumatölti má búast við því að keppnin verði jöfn og spennandi. Í fyrra var það Ásmundur Ernir Snorrason sem stóð efstur atvinnumanna á Aðdáun frá Sólstað. Hann mætir nú á List frá Austurási. Þá má sjá á ráslitanum sterk pör líkt og Gústaf Ásgeir Hinriksson og Gými frá Skúfslæk sem hafa átt góðu gengi að fagna í slaktaumatölti. Þá er sigurvegarinn í Meistaradeild Líflands í slaktaumatölti, Jón Ársæll Bergmann, á meðal keppenda nú á hestinum Skjóna frá Skálakoti.

Í flokki áhugamanna í fyrra var það Soffía Sveinsdóttir sem efst stóð, hún er þó ekki á meðal knapa nú og því ljóst að nýr sigurvegari verður krýndur í þeim flokki. Hver það verður er erfitt að spá fyrir um. Aðeins eitt par sem var í úrslitum í fyrra er skráð til leiks en það eru þau Þórdís Sigurðardóttir og Gljái frá Austurkoti.

 

Ráslistar

Suðurlandsdeild Eques í hestaíþróttum 2026
Parafimi
Holl At/Á Knapi Hestur Lið
1 At Dagbjört Skúladóttir Spyrnir frá Bárubæ Kastalabrekka
1 Á Anne Röser Lokkadís frá Þóreyjarnúpi Kastalabrekka
2 At Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum Hestefli
2 Á Snæbjörg Guðmundsdóttir Dís frá Bjarnanesi Hestefli
3 At Sigríkur Jónsson Hrefna frá Efri-Úlfsstöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
3 Á Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Foringi frá Laxárholti 2 Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
4 At Stella Sólveig Pálmarsdóttir Kúba frá Strandarhöfði Vöðlar/Snilldarverk
4 Á Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg Fengsæll frá Jórvík Vöðlar/Snilldarverk
5 At Ásdís Brynja Jónsdóttir Rós frá Fákshólum Wicked viking
5 Á Jónas Már Hreggviðsson Kolbeinn frá Hrafnsholti Wicked viking
6 At Lea Schell Korkur frá Hárlaugsstöðum 2 Krappi
6 Á Sara Pesenacker Kjarval frá Skíðbakka III Krappi
7 At Hekla Katharína Kristinsdóttir Rökkvi frá Heysholti Árbakki/Árbæjarhjáleiga
7 Á Arney Ólöf Arnardóttir Safír frá Árbæjarhjáleigu II Árbakki/Árbæjarhjáleiga
8 At Hekla Rán Hannesdóttir Tindur frá Árdal Bakkakot
8 Á Hinrik Ragnar Helgason Freyr frá Bakkakoti Bakkakot
9 At Þorgils Kári Sigurðsson Nasi frá Syðra-Velli Raflagnaþjónusta Selfoss
9 Á Emma Goltz Elrir frá Grundarfirði Raflagnaþjónusta Selfoss
10 At Selina Bauer Fía frá Strandarhöfði Húsasmiðjan
10 Á Lilja Hrund Pálsdóttir Reykur frá Prestsbakka Húsasmiðjan
11 At Ólafur Þórisson Sólbirta frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
11 Á Sarah Maagaard Nielsen Djörfung frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
Slaktaumatölt
Holl At/Á Knapi Hestur Lið
1 Á Þórdís Sigurðardóttir Gljái frá Austurkoti Raflagnaþjónusta Selfoss
1 Á Rúnar Freyr Rúnarsson Styrkur frá Stokkhólma Bakkakot
2 At Halldór Snær Stefánsson Tign frá Norður-Nýjabæ Kastalabrekka
2 At Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Hjaltalín frá Sumarliðabæ 2 Hestefli
3 Á Elísabet Gísladóttir Víkingur frá Hrafnsholti Wicked viking
3 Á Hannes Brynjar Sigurgeirson Sigurpáll frá Varmalandi Vöðlar/Snilldarverk
4 At Katrín Sigurðardóttir Bára frá Hrauni Miðkot/Skeiðvellir
4 At Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Penni frá Eskiholti II Húsasmiðjan
5 Á Kristinn Karl Garðarsson Veigar frá Grafarkoti Krappi
5 Á Svana Hlín Eiríksdóttir Hagalín frá Efri-Rauðalæk Árbakki/Árbæjarhjáleiga
6 At Alma Gulla Matthíasdóttir Ágúst frá Hrauni Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
6 At Malin Marianne Andersson Tangó frá Skriðu Wicked viking
7 Á Malou Sika Jester Bertelsen Kakali frá Glæsibæ Kastalabrekka
7 Á Arndís Ólafsdóttir Sigur frá Sunnuhvoli Húsasmiðjan
8 At Eygló Arna Guðnadóttir Sóli frá Þúfu í Landeyjum Raflagnaþjónusta Selfoss
8 At Ásmundur Ernir Snorrason List frá Austurási Vöðlar/Snilldarverk
9 Á Theodóra Jóna Guðnadóttir Óskadís frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
9 Á Þorbjörn Hreinn Matthíasson Máni frá Syðra-Velli Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
10 At Sigurður Sigurðarson Tromma frá Kjarnholtum I Krappi
10 At Jón Ársæll Bergmann Skjóni frá Skálakoti Bakkakot
11 Á Hulda Jónsdóttir Grátur frá Hraunbæ Hestefli
12 At Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk Árbakki/Árbæjarhjáleiga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar