Landsamband hestamanna Knapafundur um gæðingalist

  • 24. febrúar 2026
  • Fréttir

Faghópur um gæðingalist heldur knapafund fyrir keppendur í gæðingalist. Þetta kemur fram á vef Landssambands hestamanna.

Fjallað verður um skilgreiningar á æfingum, reglur gæðingalistar og fleira sem getur hjálpað knöpum við að setja upp prógramm fyrir komandi mót í gæðingalist.

Fundurinn fer fram á Teams, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 19.00 og er opinn öllum áhugasömum knöpum í gæðingalist.

Hér er hlekkur á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/3435774962828?p=X2lvuc9GnFBopzuWCW

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar