Hrossamarkaður í Votmúla
Hrossauppboðsmarkaður verður haldinn í Votmúla laugardaginn 7. maí kl. 16. Til sölu verða hross á öllum aldri og öllum stigum tamningar, efnileg unghross, reiðhross, og keppnishross undan Hruna frá Breiðumörk, Vals frá Efra-Seli, Álmi frá Skjálg, Segli frá Reykjakoti o.fl.
Unghrossin verða rekin til og tamin hross sýnd í reið. Einnig verða boðnir upp folatollar undir Vals frá Efra-Seli sem er efnilegur foli undan Álfi frá Selfossi og Villirós frá Feti (1.v.).
Hrossin eru öll frá Efra-Seli en nýlega lést bóndinn og tamningamaðurinn Þórir Níels Jónsson snögglega úr krabbameini. Því eru nú til sölu hross úr ræktun hans og konu hans Áslaugar Fjólu. 5% af allri sölu mun renna óskipt til krabbameinsdeildar Landspítalans.
Taktu þátt í skemmtilegri markaðs stemningu, leggðu Áslaugu lið, og gerðu góð kaup. Hinn landsfrægi Steindór Guðmundsson mun halda utan um míkrafóninn.
Síðar í vikunni mun betur verða upplýst um þau hross sem verða boðin til kaups.
Nefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH