Opið fyrir skráningu í uppboðssæti í gæðingalist
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Gæðingalist. Keppt verður í gæðingalist föstudaginn 6. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 4. mars kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.
Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR.
Opið fyrir skráningu í uppboðssæti í gæðingalist
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu