Háar einkunnir í takt við gæði sýninga – viðtal

  • 10. maí 2011
  • Fréttir
Háar einkunnir í takt við gæði sýninga - viðtal

Dómarar sýndu óneitanlega háar tölur á Reykjavíkurmeistamótinu um liðna helgi. Þegar bornar eru saman einkunnir nokkurra sigurvegara Reykjavíkurmótsins sést að margir sigursæl keppnispör fengu sínar hæstu einkunnir hingað til á ferlinum.

Þar ber helst að nefna töltmeistarana Viðar Ingólfsson og Tuma frá Stóra-Hofi en þeir fengu einkunnina 9,06 í A-úrslitum eftir að hafa hlotið 8,57 í forkeppni. Þegar þeir félagar sigruðu sama mót í fyrra hlutu þeir 8,07 í forkeppni og 8,61 í úrslitum, sem þá þótti afar há einkunn.  

Eiðfaxa veltir fyrir sér; er íþróttakeppnin að ná nýjum hæðum eða eru dómarar að gefa hærri tölur?

Snorri Ólason, yfirdómari mótsins, er ánægður með alla dómgæslu helgarinnar. „Ég er í heildina afar ánægður og tel að réttu hestarnir hafi unnið. Samræmi milli dómara var gott allt mótið.“ Hann segir ástæðu hærri einkunna felast í betri sýningum.

„Hrossin á mótinu voru frábær og reiðmennskunni er augljóslega að fleygja fram. Mótið var sterkt, sýningar keppenda voru frábærar og góða veðrið hefur eflaust líka haft áhrif á dagsform keppenda. Mér finnst því ekkert óeðlilegt við að einkunnir mótsins séu háar. Þær standa allar fyrir sínu og voru ekki of háar miðað við gæði sýninga. Ég hef t.a.m. aldrei séð Viðar og Tuma betri,“ segir Snorri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link