Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Dregið í rásröð Gæðingalistar í Meistaradeild Líflands

  • 4. mars 2026
  • Fréttir

Fallegt samspila knapa og hests er lykilatriði í keppni í gæðingalist. Ljósmynd: Carolin Giese/Meistaradeild Líflands

Fylgstu með í kvöld þegar dregið verður í rásröð í opinni dagskrá á vef Eiðfaxa og á EiðfaxaTV.

Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands en á föstudaginn verður keppt í gæðingalist. Keppni hefst kl. 19:00 á föstudaginn næsta, 6.mars. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.

TopReiter býður gestum frítt í stúkuna á föstudaginn og verður hlaðborðið á sínum stað en þeir sem panta fyrirfram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni. HÉR er hægt að panta á hlaðborðið.

Hér fyrir neðan getur fylgst með þegar dregið verður í rásröð fyrir gæðingalist og þá sjáum við hvaða hesta knapar deildarinnar mæta með á föstudaginn. Útsending frá drættinum hefst klukkan 20:00. Umsjónarmaður er Arnar Bjarki Sigurðsson og með honum er að þessu sinni Ásgeir Svan Herbertsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar