Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Spennandi ráslisti í gæðingalistinni

  • 4. mars 2026
  • Fréttir

Myndir: Carolin Giese @linaimages

Ráslistinn er klár fyrir gæðingafimina á föstudaginn í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum en á föstudaginn verður keppt í gæðingalist. Líkt og áður fer keppni fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og hefst keppni kl. 19:00.

Ráslistar eru klárir og er sigurparið frá því í fyrra, Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði, númer sjö í rásröð. Ásmundur leiðir í einstaklingskeppninni og ætlar sér eflaust efsta sætið á pallinum á föstudaginn. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðsstöðum urðu í öðru sæti í fyrra, þremur kommum neðar en Ási, og verður gaman að sjá hvað þau gera á föstudaginn.

TopReiter býður gestum frítt í stúkuna og verður hlaðborðið á sínum stað en þeir sem panta fyrirfram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni. HÉR er hægt að panta á hlaðborðið.

Sýnt verður beint frá mótinu á EiðfaxaTV og mun útsending hefjast 18:40

Ráslisti fyrir gæðingalistina
  1. Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti Ib bílar
  2. Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Top Reiter / Sumarliðabær
  3. Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Hrímnir / Hest.is
  4. Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún
  5. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum Ganghestar / Margrétarhof
  6. Glódís Rún Sigurðardóttir Vikar frá Austurási Hestvit / Árbakki
  7. Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is
  8. Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku Hjarðartún
  9. Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Ib bílar
  10. Ragnhildur Haraldsdóttir Særún frá Steinnesi Ganghestar / Margrétarhof
  11. Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal Hestvit / Árbakki
  12. Eyrún Ýr Pálsdóttir Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 Top Reiter / Sumarliðabær
  13. Þorgeir Ólafsson Aspar frá Hjarðartúni Ib bílar
  14. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof
  15. Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is
  16. Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni Hjarðartún
  17. Pierre Sandsten Hoyos Kinnungur frá Torfunesi Hestvit / Árbakki
  18. Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika Top Reiter / Sumarliðabær

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar