Eldhestar hljóta gæðaverðlaun CIE Tours í þriðja sinn

  • 5. mars 2026
  • Uncategorized @is

Hróðmar Bjarnason (t.v.) tekur við viðurkenningunni. Ljósmynd: Anton Brink

Kynning á íslenska hestinum mikilvægur hluti af starfseminni

Hestamiðstöðin Eldhestar í Ölfusi hlaut á dögunum eftirsótt gæðaverðlaun frá írsku ferðaskrifstofunni CIE Tours (Icelandic Merit Award). Þetta er í þriðja skiptið sem Eldhestar hljóta þessa viðurkenningu, sem byggir alfarið á ánægju og umsögnum viðskiptavina.

CIE Tours er stór ferðaskrifstofa á írskan mælikvarða og á hún í reglulegu samstarfi við Eldhesta. Hróðmar Bjarnason hjá Eldhestum segir viðurkenninguna staðfesta að starfsemin sé á réttri leið, sérstaklega hvað varðar fræðslu um íslenska hestinn.

„Þessi ferðaskrifstofa stoppar reglulega hjá okkur með hópa sem fá kynningu á íslenska hestinum, sérkennum hans, gangtegundum, sögu og notkun. Þessi starfsemi, að kynna hestinn okkar, er alltaf að verða stærri hluti af okkar daglega starfi og við erum stolt af því að geta sinnt því,“ segir Hróðmar.

Ánægja viðskiptavina í fyrirrúmi
Verðlaunin eru veitt þeim ferðaþjónustufyrirtækjum sem skara fram úr í þjónustu og upplifun gesta. Að sögn Hróðmars er alltaf ánægjulegt að fá slíkan gæðastimpil, enda séu það viðbrögð viðskiptavina sem skipti mestu máli í rekstrinum.

Eldhestar hafa boðið upp á fjölbreyttar hestaferðir allt frá árinu 1986. Starfsemin spannar allt frá stuttum reiðtúrum upp í átta daga ferðir, þar sem gestir njóta gistingu og veitinga á sveitahóteli fyrirtækisins á Völlum í Ölfusi.

Þessi viðurkenning frá CIE Tours undirstrikar sterka stöðu Eldhesta sem mikilvægs snertiflöt ferðamanna við íslenska hestsins og áhuga þeirra á honum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar