Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Spenna í einstaklingskeppninni

  • 7. mars 2026
  • Fréttir

Lið TopReiter/Sumarliðabæjar vann liðaplattann í síðustu grein, gæðingalist. Myndir: Carolin Giese - Meistaradeild

Staðan í einstaklings- og liðakeppni Meistaradeildar Líflands þegar keppni er hálfnuð

Keppni í fjórum greinum er lokið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sem segir okkur það að deildin er hálfnuð. Tvö mót eru eftir þar sem keppt verður í þremur skeiðgreinum og einni hringvallargrein. Skeiðmót Meistaradeildarinnar verður á Selfossi þann 21. mars og lokamót deildarinnar í HorseDay höllinni þann 27. mars.

Skeiðgreinarnar dýrkeyptar

Það er nóg af stigum eftir í pottinum og óhætt að segja að staðan í einstaklingskeppninni sé mjög spennandi. Mjótt er á munum á efstu knöpum og þær greinar sem eftir eru eru frábrugðnar þeim sem búið er að keppa í, og oft hefur það gerst að aðrir knapar fara telja inn stig.

Ásmundur Ernir Snorrason er efstur sem stendur í einstaklingskeppninni með 33,5 stig. Í fyrra fóru skeiðgreinarnar ekki nógu vel hjá honum sem mætti segja að kostað hafi hann sigur í deildinni. Gaman verður að sjá hverju hann teflir fram í ár og vonandi verður lukkan með honum.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir er önnur í einstaklingskeppninni með 30 stig. Hún er vel hestuð í 150 metrana og flugskeiðið en hvað hún mætir með í gæðingaskeiðið hefur ekki verið gefið út. Jakob Svavar Sigurðsson er einu stigi neðar með 29 stig og í því fjórða er Jón Ársæll Bergmann með 20 stig.

Heildarstöðuna í einstaklingskeppninni má sjá hér fyrir neðan.

Það er mjótt á munum í einstaklingskeppninni og skiptir hvert stig máli. Efstu knapar í gæðingalistinni, f.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Ásmundur Ernir Snorrason, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Árni Björn Pálsson, Þorgeir Ólafsson, Arnhildur Helgadóttir, Teitur Árnason, Jón Ársæll Bergmann og Glódís Rún Sigurðardóttir. 

 

Minni spenna í liðakeppninni

Eins og staðan er er minni spenna í liðakeppninni. Hjarðartún er komið með gott forskot á hin liðin, eftir sigur í fyrstu þremur greinunum. TopReiter/Sumarliðabær er 36 stigum fyrir neðan þau með 126 stig og Hrímnir/Hest.is í því þriðja með 109 stig.

Í fyrra voru það lið Hjarðartúns og TopReiter sem tóku liðaplattana í skeiðgreinunum en lið TopReiter/Sumarliðabæjar er skipað sömu knöpum og telur Konráð Valur Sveinsson alltaf drjúgt fyrir liðið í þessum greinum. Lið Hjarðartúns er örlítið breytt frá því í fyrra og verður gaman að sjá hvaða pörum þau tefla fram á laugardaginn. Þau hafa styrkt sig á gæðingaskeiðsvængnum og í liðinu er sigurparið frá því í fyrra í 150 m. skeiði, Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði, svo liðið er til alls líklegs.

Það verður gaman að sjá ráslistana þegar þeir líta dagsins ljós en eitt er öruggt að við fylgjumst spennt með framhaldinu.

Hjarðartún leiðir í liðakeppninni. Knapar eru Jakob Svavar Sigurðsson, Helga Una Björnsdóttir, Hans Þór Hilmarsson, Arnhildur Helgadóttir og Elvar Þormarsson

Staðan í einstaklingskeppninni
  1. Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir / Hest.is 33.5
  2. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar / Margrétarhof 30
  3. Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún 29
  4. Jón Ársæll Bergmann Ib bílar 20
  5. Þorgeir Ólafsson Ib bílar 17.5
  6. Arnhildur Helgadóttir Hjarðartún 14.5
  7. Eyrún Ýr Pálsdóttir Top Reiter / Sumarliðabær 14.5
  8. Árni Björn Pálsson Top Reiter / Sumarliðabær 13
  9. Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún 11.5
  10. Glódís Rún Sigurðardóttir Hestvit / Árbakki 11
  11. Hans Þór Hilmarsson Hjarðartún 10
  12. Teitur Árnason Top Reiter / Sumarliðabær 8.5
  13. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Top Reiter / Sumarliðabær 6
  14. Gústaf Ásgeir Hinriksson Hestvit / Árbakki 3.5
  15. Jóhanna Margrét Snorradóttir Hestvit / Árbakki 2.5
  16. Benjamín Sandur Ingólfsson Ib bílar 2
  17. Bergur Jónsson Ib bílar 1
  18. Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Margrétarhof 1
Staðan í liðakeppninni
  1. Hjarðartún 162
  2. Top Reiter/Sumarliðabær 126
  3. Hrímnir / Hest.is 109
  4. IB bílar 102
  5. Ganghestar / Margrétarhof 96
  6. Hestvit / Árbakki 88

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar