Spennandi fjórgangsmót í Suðurlandsdeild Eques
Frá verðlaunaveitingu í úrslitum atvinnumanna í fjórgangi Suðurlandsdeildar árið 2025
Þriðja keppnisgrein Suðurlandsdeildar Eques í hestaíþróttum fer fram á morgun, þriðjudaginn 10.mars. Keppni hefst klukkan 18:30 en Rangárhöllin opnar klukkan 17:30 þar sem veitingasalan verður á sínum stað.
Nú verður keppt í fjórgangi og líkt og áður eru það bæði atvinnu- og áhugamenn sem etja kappi en keppt er til úrslita í báðum þessum flokkum. Á síðasta móti var keppt í parafimi og slaktaumatölti og er staðan í liðakeppni jöfn og spennandi eftir þessar tvær greinar. Einungis munar sjö stigum á liðinu í efsta og fimmta sæti.
Staða efstu liða
- Miðkot/Skeiðvellir 77 stig
- Vöðlar/Snilldarverk 76 stig
- Hestefli 75 stig
- Krappi 73 stig
- Bakkakoti 70 stig
Flott pör á ráslista
Þegar rýnt er í ráslista fyrir kvöldið má sjá mörg sterk pör og þeirra á meðal eru sigurvegararnir í atvinnumannaflokki frá því í fyrra þau Stella Sólveig Pálmarsdóttir og Stimpill frá Strandarhöfði en hún er eina parið á ráslista sem reið til úrslita í fjórgangi Suðurlandsdeildar á síðasta ári. Hrauney frá Flagbjarnarholti var í úrslitum í þessari grein í fyrra með Gyðu Sveinbjörgu sem knapa en nú keppir á henni Selina Bauer. Þær fá verðuga keppni í ár frá sterkum pörum sem hafa náð góðum árangri í fjórgangi og má þar nefna Bjarneyju Jónu Unnsteinsdóttur á Hrafni frá Ytri-Skógum, Heklu Rán Hannasdóttur á Ísberg frá Hákoti, Gústaf Ásgeir á Útherja frá Blesastöðum, Heklu Katharínu Kristinsdóttur á Rökkva frá Heysholti og Sigurði Sigurðarsyni á Þrótti frá Hvammi. Marga fleiri vel ríðandi frábæra knapa í þessum flokki mætti nefna og ljóst að hart verður barist um efstu sæti.
Í flokki áhugamanna er einungis að finna eitt keppnispar af þeim sem voru í úrslitum Suðurlandsdeildar á síaðsta ári en það er Soffía Sveinsdóttir á Skuggaprinsi frá Hamri sem urðu í sjötta sæti. Þá er einnig að finna á ráslista Ása frá Hásæti sem var í úrslitum í fyrra en mætir nú með öðrum knapa, Pernillu Göransson. Asa Ljungberg mætir þá á Fengsæl frá Jórvík sem var í A-úrslitum í flokki atvinnumanna í fyrra ásamt eiginmanni Aasu, Ólafi Ásgeirssyni. Líkt og í atvinnumannaflokknum eru margir í þessum áhugamannaflokki sem gætu gert góða hluti líkt og Sarah Maagaard Nielsen á Gjálp frá Miðkoti sem reið til úrslita í þessari grein í Samskipadeildinni fyrir tveimur vikum.
Allir sem geta eru hvattir til að mæta í Rangárhöllina á morgun til að njóta góðra hrossa en Samverk er aðalstyrktaraðili kvöldsins og býður gestu velkoma. Auk þess verður mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Ráslisti
| Suðurlandsdeild Eques í hestaíþróttum 2026 | ||||
| Fjórgangur Samverks | ||||
| Holl | At/Á | Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | Á | Elísabet Gísladóttir | Víkingur frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 1 | Á | Kristinn Karl Garðarsson | Veigar frá Grafarkoti | Krappi |
| 2 | At | Ólafur Þórisson | Sleipnir frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| 2 | At | Eva María Aradóttir | Drottning frá Hjarðarholti | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 3 | Á | Marie Hollstein | Títan frá Margrétarhofi | Bakkakot |
| 3 | Á | Þórdís Sigurðardóttir | Árvakur frá Minni-Borg | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 4 | At | Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir | Hrafn frá Vatni | Húsasmiðjan |
| 4 | At | Stella Sólveig Pálmarsdóttir | Stimpill frá Strandarhöfði | Vöðlar/Snilldarverk |
| 5 | Á | Brynja Pála Bjarnadóttir | Blesi frá Heysholti | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 5 | Á | Hulda Jónsdóttir | Dökkvi frá Miðskeri | Hestefli |
| 6 | At | Fríða Hansen | Brenna frá Leirubakka | Kastalabrekka |
| 6 | At | Malin Marianne Andersson | Vígur frá Einiholti | Wicked viking |
| 7 | Á | Hallgrímur Birkisson | Dofri frá Þjóðólfshaga 1 | Krappi |
| 7 | Á | Soffía Sveinsdóttir | Skuggaprins frá Hamri | Miðkot/Skeiðvellir |
| 8 | At | Róbert Bergmann | Dökkvi frá Bakkakoti | Bakkakot |
| 8 | At | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Rökkvi frá Heysholti | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 9 | Á | Þorbjörn Hreinn Matthíasson | Sambó frá Kanastöðum | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 9 | Á | Lilja Hrund Pálsdóttir | Reykur frá Prestsbakka | Húsasmiðjan |
| 10 | At | Þorgils Kári Sigurðsson | Gramur frá Syðra-Velli | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 10 | At | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 | Hestefli |
| 11 | Á | Aasa Ljungberg | Fengsæll frá Jórvík | Vöðlar/Snilldarverk |
| 11 | Á | Anne Röser | Lokkadís frá Þóreyjarnúpi | Kastalabrekka |
| 12 | At | Ásdís Brynja Jónsdóttir | Rós frá Fákshólum | Wicked viking |
| 12 | At | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Útherji frá Blesastöðum 1A | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 13 | Á | Rúnar Freyr Rúnarsson | Kári frá Björgum | Bakkakot |
| 13 | Á | Pernilla Therese Göransson | Ási frá Hásæti | Húsasmiðjan |
| 14 | At | Sigurður Sigurðarson | Þróttur frá Hvammi | Krappi |
| 14 | At | Sigríkur Jónsson | Fjöður frá Brattholti | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 15 | Á | Malou Sika Jester Bertelsen | Kakali frá Glæsibæ | Kastalabrekka |
| 15 | Á | Snæbjörg Guðmundsdóttir | Dís frá Bjarnanesi | Hestefli |
| 16 | At | Katrín Sigurðardóttir | Ólína frá Skeiðvöllum | Miðkot/Skeiðvellir |
| 16 | At | Katrín Eva Grétarsdóttir | Dögg frá Þorlákshöfn | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 17 | Á | Hannes Brynjar Sigurgeirson | Hrókur frá Varmalandi | Vöðlar/Snilldarverk |
| 17 | Á | Jónas Már Hreggviðsson | Kolbeinn frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 18 | At | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Eik frá Syðri-Fljótum | Krappi |
| 18 | At | Dagbjört Skúladóttir | Óskadís frá Miðkoti | Kastalabrekka |
| 19 | Á | Nanna Jónsdóttir | Hrefna frá Efri-Úlfsstöðum | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 19 | Á | Arney Ólöf Arnardóttir | Höfða-Rún frá Egilsstaðakoti | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 20 | At | Hekla Rán Hannesdóttir | Ísberg frá Hákoti | Bakkakot |
| 20 | At | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Hrafn frá Ytri-Skógum | Hestefli |
| 21 | Á | Sarah Maagaard Nielsen | Gjálp frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| 22 | At | Selina Bauer | Hrauney frá Flagbjarnarholti | Húsasmiðjan |
| 22 | At | Ásmundur Ernir Snorrason | Feykir frá Strandarhöfði | Vöðlar/Snilldarverk |
| 23 | Á | Emma Goltz | Ösp frá Áskoti | Raflagnaþjónusta Selfoss |
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Erla og Þorvaldur sigurvegarar fjórgangsins
FEIF Youth Cup 2026