Menntaráðstefna LH og FEIF 2026
Menntanefndir LH og FEIF halda Menntaráðstefnu í Skagafirði dagana 23.-25. september 2026. Ráðstefnan hefst eftir hádegi miðvikudaginn 23. og endar um hádegi föstudaginn 25. september.
Meginþema ráðstefnunnar verður gangskiptingar og gangsetning ásamt hraðabreytingum.
Ráðstefnan gildir til endurmenntunareininga fyrir Matrixulista FEIF og ætti að vera viðurkennd sem símenntun hjá mörgum stéttarfélögum. Ráðstefnan er sérstaklega hugsuð fyrir starfandi reiðkennara og þjálfara, en einnig eru allir dómarar velkomnir sem og annað áhugasamt fagfólk í greininni.
Þetta er upplagt tækifæri til að taka nokkra daga í símenntun og skella sér svo í Laufskálarétt og tilheyrandi skemmtan um helgina.
Nánari upplýsingar koma á næstu dögum og skráning hefst 20. mars hjá skrifstofu LH.
EKKI missa af!
Menntaráðstefna LH og FEIF 2026
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Sköpulagsdómar hrossa – aukinn sveigjanleiki eftir fimm vetra aldur