Álfasteinn rýfur 50 afkvæma múrinn

  • 6. júní 2011
  • Fréttir
Danir hrósa happi í fleiru en fótbolta

Álfasteinn frá Selfossi er kominn með 51 fulldæmt afkvæmi skráð í WorldFeng. Það þýðir að ef hann nær 118 stigum í Bluppi eftir næsta útreikning kynbótamatsins, sem reiknað verður fyrir Landsmót, er hann kominn með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Hann verður þó ekki sýndur með afkvæmum á LM2011, þar sem hann á heima í Danmörku eins og flestum hestamönnum er kunnugt. En óneitanlega væri gaman að sjá afkvæmahóp undan honum þar. Eitthvað fyrir fagráð og stjórn Landsmóts að hugleiða.

Álfasteinn er með 123 stig í kynbótamatinu eins og það stendur núna miðað við útreikning frá í fyrra. Hann var þá með 267 skráð afkvæmi og þar af voru 28 með fullnaðardóm. Hann er með 110 stig fyrir sköpulag og hvergi undir 100 stigum þar nema fyrir prúðleika, sem er 82 stig.

Fyrir kosti er hann með 123 stig, hæst fyrir fegurð í reið 127 stig, og síðan kemur vilji 119 og tölt 117. Öryggi kynbótaspárinnar er 95%, sem er allhátt og kemur varla til með að breytast verulega. Alla vega er heldur ólíklegt að kynbótaeinkunnin hrapi niður fyrir 118 stig, ekki síst í ljósi þess að meðaltal aðaleinkunna fulldæmdra afkvæma Álfasteins er ríflega 7,94. Álfasteinn á nú 278 afkvæmi skráð í WorldFeng. Þar af eru tæplega 100 með útlenda kennitölu. Öll afkvæmi með fullnaðardóm eru fædd á Íslandi. Þau eru langflest 5 og 6 vetra.

Það er ljóst að Álfasteinn er með meiri háttar kynbótahestum síðari tíma, alla vega miðað við útkomu í WorldFeng. Danir geta því hrósað happi í fleiru en fótbolta. Án efa verður Álfasteinn eftirsóttur um allt meginland Evrópu næstu árin. Það er huggun harmi gegn að nokkrir gullgóðir stóðhestar eru komnir fram undan honum hér heima.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link