Ráslisti klár fyrir slaktaumatöltið
Hermann Arason og Sproti frá Vindási ríða á vaðið en keppni hefst á slaginu 19:00. KAT býður gesti velkomna í nýju reiðhöllina í Sörla og verður Flóra veisluþjónusta með hlaðborð á boðstólnum fyrir mótið en húsið opnar 17:30.
Þetta er þriðja keppnisgreinin í 1. deild Hringdu en keppnisgreinarnar eru alls sjö talsins. Eins og staðan er núna er það Katla Sif Snorradóttir sem leiðir í einstaklingskeppninni með 20 stig og mætir hún með Svikara frá Litla-Laxholti en hún hefur ekki keppt á honum áður. Lea Schell er í öðru sæti í einstaklingskeppninni en hún mun sitja hjá í þessari grein. Í þriðja sæti er Þórdís Inga Pálsdóttir og mætir hún með Hólma frá Kaldbak en Hólmi vann slaktaumatöltið í Meistaradeild æskunnar nú fyrr í mánuðinum með knapa sínum þá, Berthu Liv Bergstað.
Það stefnir í spennandi keppni í slaktaumatölti í 1. deild Hringdu en fyrir þá sem eiga ekki heimangengt geta horft á mótið í beinni á EiðfaxaTV.
Ráslisti – Slaktaumatölt
- Hermann Arason Sproti frá Vindási Vindás/stóðhestaval
- Þorvaldur Logi Einarsson Tangó frá Skriðu Kidka/Hestakofi
- Hannes Sigurjónsson Goði frá Oddgeirshólum 4 Tommy Hilfinger
- Friðdóra Friðriksdóttir Bylur frá Kirkjubæ Horseday
- Reynir Örn Pálmason Alfa frá Margrétarhofi Hringdu
- Hlynur Guðmundsson Sólon frá Ljósalandi í Kjós Fornusandar
- Snorri Dal Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Sportfákar
- Benedikt Ólafsson Kilja frá Korpu Hrímnir
- Hulda Sveinbjörnsdóttir Lifri frá Lindarlundi Vindás/stóðhestaval
- Eysteinn Tjörvi Kristinsson Svarta Rún frá Kviku Kidka/Hestakofi
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Ófeigur frá Þingnesi Tommy Hilfinger
- Haukur Tryggvason Hrafnar frá Hvoli Hringdu
- Ólafur Þórisson Sólbirta frá Miðkoti Fornusandar
- Katla Sif Snorradóttir Svikari frá Litla-Laxholti Sportfákar
- Henna Johanna Sirén Herjann frá Eylandi Horseday
- Hafþór Hreiðar Birgisson Löngun frá Dýrfinnustöðum Hrímnir
- Frederica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi Kidka/Hestakofi
- Jóhann Kr. Ragnarsson Blakkur frá Traðarholti Tommy Hilfinger
- Vilborg Smáradóttir Ræðu-Jarl frá Brúnastöðum 2 Vindás/stóðhestaval
- Katrín Ólína Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Fornusandar
- Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Sportfákar
- Bergrún Ingólfsdóttir Árvakur frá Kálfholti Horseday
- Thelma Dögg Tómasdóttir Fjóla frá Vetri Hringdu
- Þórdís Inga Pálsdóttir Hólmi frá Kaldbak Hrímnir
Ráslisti klár fyrir slaktaumatöltið
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýr þáttur af TopReiter stofunni