Fjöldi frábærra alhliðahrossa í Meistaradeild KS
Finnbogi Bjarnason fagnar sigri í fimmgangi í Meistaradeild KS árið 2025
Þriðja keppnisgreinin í Meistaradeild KS fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki föstudagskvöldið 13.mars. Keppni hefst stundvíslega klukkan 18:00 og það er 550 SKR sem býður alla velkomna á mótið. Mótið er í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Alls eru 29 knapar skráðir til leiks og þar af tveir uppboðsknapar, það virðist því vera nægt framboð af góðum keppnishrossum í fimmgangi þar nyrðra. Á meðal uppboðsknapanna er Vera Evi Schneiderchen sem er efst í einstaklingskeppninni og vill ná sér í mikilvæg stig í þeirri baráttu. Hún keppir á Geislu frá Höskuldsstöðum sem er með 1.verðlaun í kynbótadómi en óreynd í keppni.
Sterk pör skráð til leiks
Á síðasta keppnistímabili var það Finnbogi Bjarnason á Eini frá Enni sem vann þessa grein en ljóst er að þeir saman verja ekki titilinn því Finnbogi mætir nú á öðru hrossi, Flís frá Narfastöðum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal varð í þriðja sæti í fyrra á Sindra frá Lækjamóti og eru þeir skráðir til leiks í ár og ætla sér ofar. Af öðrum A-úrslitahrossum frá því í fyrra sem mæta á föstudaginn er að finna Fák frá Oddhóli sem í fyrra var sýndur af Kristjáni Árna Birgissyni en nú verður það Þórgunnur Þórarinsdóttir sem teflir honum fram. Kristján Árni mætir hingsvegar á reyndum keppnishesti, Vísi frá Ytra-Hóli. Þórarinn Eymundsson keppir á hinum þrautreynda Þránni frá Flagbjarnarholti en þeir hafa sigrað þessa grein í fimmgangi í Meistaradeild KS alls þrisvar sinnum árin 2024,2023 og 2021 farsæll keppnis- og kynbótahestur.
Af öðrum áhugaverðum pörum sem skráð eru til leiks má nefna Atla Frey Maríönnuson og Þulu frá Bringu sem voru í B-úrslitum í fimmgangi í Meistaradeild KS í fyrra. Þá er fljótasta par heimsins á skeiði, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk og Konráð Valur Sveinsson, skráðir til leiks. Þórey Þula Helgadóttir og Kjalar frá Hvammi hafa átt góðan feril og voru m.a. í A-úrslitum á Íslandsmóti í fimmgangi á síaðsta ári í ungmennaflokki. Þá hefur keppnisferill Vignis Sigurðassonar á Eyfjörð frá Litlu-Brekku byrjað vel og þeir gætu vel blandað sér í toppbaráttu.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að telja upp alla þá sem keppa í fimmgangi á föstudagskvöldið upp hér í þessari yfirferð og alveg eins líklegt að einhver komi á óvart og fari heim með sigur í greininni.
Ráslisti
| Nr. | Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | Jóhann Magnússon | Frár frá Bessastöðum | Uppsteypa |
| 2 | Herjólfur Hrafn Stefánsson | Yllir frá Reykjavöllum | Bústólpi |
| 3 | Guðrún Lilja Rúnarsdóttir | Freydís frá Morastöðum | Exar |
| 4 | Þórarinn Eymundsson | Þráinn frá Flagbjarnarholti | Hrímnir/ Hestklettur |
| 5 | Mette Mannseth | Töfri frá Þúfum | Þúfur |
| 6 | Erlingur Ingvarsson | Eyjasól frá Litlu-Brekku | Lífland |
| 7 | Uppboðssæti Vera Evi Schneiderchen | Geisla frá Höskuldsstöðum | – |
| 8 | Magnús Bragi Magnússon | Rosi frá Berglandi I | Íbishóll |
| 9 | Elvar Einarsson | Snælda frá Syðra-Skörðugili | StormRider |
| 10 | Sigrún Rós Helgadóttir | Grásteinn frá Hofi á Höfðaströnd | Hofstorfan/ 550 |
| 11 | Kristján Árni Birgisson | Vísir frá Ytra-Hóli | Hrímnir/ Hestklettur |
| 12 | Egill Már Þórsson | Þrá frá Skriðu | Bústólpi |
| 13 | Finnbogi Bjarnason | Flís frá Narfastöðum | StormRider |
| 14 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Sindri frá Lækjamóti II | Uppsteypa |
| Hlé 10 mín ! | |||
| 15 | Guðmar Freyr Magnússon | Spölur frá Efri-Þverá | Þúfur |
| 16 | Þórey Þula Helgadóttir | Kjalar frá Hvammi I | Hofstorfan/ 550 |
| 17 | Sigurður Dagur Eyjólfsson | Þór frá Meðalfelli | Exar |
| 18 | Uppboðssæti Kristófer Darri Sigurðsson | Konsert frá Frostastöðum II | – |
| 19 | Konráð Valur Sveinsson | Kastor frá Garðshorni á Þelamörk | Íbishóll |
| 20 | Vignir Sigurðsson | Eyfjörð frá Litlu-Brekku | Lífland |
| 21 | Lea Christine Busch | Síríus frá Þúfum | Þúfur |
| 22 | Atli Freyr Maríönnuson | Þula frá Bringu | Hofstorfan/ 550 |
| 23 | Julian Veith | Hátíð frá Ísalæk | StormRider |
| 24 | Björgvin Helgason | Karlsberg frá Kommu | Bústólpi |
| 25 | Elvar Logi Friðriksson | Brimdís frá Efri-Fitjum | Uppsteypa |
| 26 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Döggin frá Eystra-Fróðholti | Lífland |
| 27 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Fákur frá Oddhóli | Hrímnir/ Hestklettur |
| 28 | Agnar Þór Magnússon | Eik frá Meðalfelli | Íbishóll |
| 29 | Emma Thorlacius | Skjór frá Skör | Exar |
Staðan í liðakeppninni
1. Hrímnir / Hestklettur 128 stig
2. Hofstorfan / 550 – 110.5 stig
3. Þúfur – 103 stig
4. Lífland – 96.5 stig
5. Íbishóll – 73.5 stig
6. Uppsteypa – 65 stig
7. Storm Rider – 53.5 stig
8. Bústólpi 51.5 stig
9. Exar 40 stig
Staðan í einstaklingskeppninni
1. Vera Evi Schneiderchen 22 stig
2. Þórarinn Eymundsson 9 stig
2. Herdís Björg Jóhannsdóttir 9 stig
4. Mette Mannseth 8 stig
5. Freyja Amble Gísladóttir 7 stig
5. Lilja Dögg Ágústsdóttir 7 stig
7. Kristófer Darri Sigurðsson 6 stig
7. Barbara Wenzl 6 stig
9. Erlingur Ingvarsson 5 stig
9. Finnbogi Bjarnason 5 stig
11. Kristján Árni Birgisson 4 stig
11: Þorsteinn Björn Einarsson 4 stig
13. Þórey Þula Helgadóttir 3 stig
13. Agnar Þór Magnússon 3 stig
15. Guðmar Freyr Magnússon 2 stig
16. Auður Karen Auðbjörnsdóttir 1,5 stig
16. Lea Busch 1,5 stig
18. Björgvin Helgason 1 stig
Fjöldi frábærra alhliðahrossa í Meistaradeild KS
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Ráslisti klár fyrir slaktaumatöltið
Nýr þáttur af TopReiter stofunni