1. deildin í hestaíþróttum Páll Bragi og Vísir öruggir sigurvegarar í 1.deild Hringdu

  • 12. mars 2026
  • Fréttir

Páll Bragi fagnar sigri í slaktaumatölti Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Lið Fornusanda stigahæsta lið kvöldsins

Þriðja keppnisgrein í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum fór fram í kvöld á Sörlastöðum í Hafnarfirði þegar keppt var í slaktaumatölti. Talsverð spenna var fyrir kvöldinu því hestakostur þeirra flinku knapa sem í deildinni keppa var góður, blanda af ungum og upprennandi hrossum og reynsluboltum. Sýnt var beint frá kvöldinu á EiðfaxaTV og voru þulir þeir Arnar Bjarki Sigurðarson og Þórarinn Ragnarsson.

Páll Bragi og lið Fornusanda sigurvegarar

Yfirburðir Páls Braga Hólmarssonar á Vísi frá Kagaðarhóli voru þónokkrir. Þeir leiddu að lokinni forkeppni með einkunnina 7,50, í öðru sæti var Þórdís Inga Pálsdóttir á Hólma frá Kaldbak með einkunnina 7,17 og í því þrijða Katrín Sigurðardóttir á Ólínu frá Skeiðvöllum með 7,13 í einkunn. Þeim fylgdu til A-úrslita þær Bergrún Ingólfsdóttir á Árvakri frá Kálfholti og Henna Johanna Siren á Herjanni frá Eylandi me 7,00. Síðastur inn í úrslitin var svo Hlynur Guðmundsson á Sóloni frá Ljósalandi í Kjós með 6,90 í einkunn.

Páll Bragi og Vísir héldu forystunni nokkuð örugglega í A-úrslitum og stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 7,67. Þeir hafa undanfarið verið á meðal allra bestu tölkeppnispara landsins og sýna fram á fjölhæfni sýna með því að ná slíkum árangri í slaktaumatölti. Þórdís Inga og Hólmi héldu öðru sætinu í A-úrslitum og enduðu með 7,29 í einkunn. Henna Siren og Herjann náðu þá að vinna sig upp um eitt sæti og enduðu í þriðja sætinu með 7,21 í einkunn.

Stigahæsta lið kvöldsins var svo lið Fornusanda en fyrir þeirra hönd í kvöld kepptu áðurnefnd Katrín Sigurðardóttir og Hlynur Guðmundsson sem riðu til úrslita og Ólafur Þórisson á Sólbirtu frá Miðkoti sem urðu í 10.sæti með 6,77 í einkunn.

Lið Fornusanda fagnar sigri í slaktaumatölti

Næsta keppniskvöld í 1.deild Hringdu er keppni í fimmgangi fimmtudaginn 26.mar á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Úrslit kvöldsins

Tölt T2
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli 7,50
2 Þórdís Inga Pálsdóttir Hólmi frá Kaldbak 7,17
3 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum 7,13
4-5 Bergrún Ingólfsdóttir Árvakur frá Kálfholti 7,00
4-5 Henna Johanna Sirén Herjann frá Eylandi 7,00
6 Hlynur Guðmundsson Sólon frá Ljósalandi í Kjós 6,90
7-8 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Lifri frá Lindarlundi 6,87
7-8 Jóhann Kristinn Ragnarsson Blakkur frá Traðarholti 6,87
9 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Ófeigur frá Þingnesi 6,83
10 Ólafur Þórisson Sólbirta frá Miðkoti 6,77
11 Snorri Dal Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 6,73
12 Reynir Örn Pálmason Alfa frá Margrétarhofi 6,60
13 Fredrica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi 6,53
14-15 Haukur Tryggvason Hrafnar frá Hvoli 6,40
14-15 Vilborg Smáradóttir Ræðu-Jarl frá Brúnastöðum 2 6,40
16 Hafþór Hreiðar Birgisson Löngun frá Dýrfinnustöðum 6,37
17 Friðdóra Friðriksdóttir Bylur frá Kirkjubæ 6,33
18 Hermann Arason Sproti frá Vindási 6,07
19 Þorvaldur Logi Einarsson Tangó frá Skriðu 5,93
20-21 Hannes Sigurjónsson Goði frá Oddgeirshólum 4 5,63
20-21 Benedikt Ólafsson Kilja frá Korpu 5,63
22 Katla Sif Snorradóttir Svikari frá Litla-Laxholti 5,47
23 Thelma Dögg Tómasdóttir Fjóla frá Vetri 4,53
24 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Svarta Rún frá Kviku 4,17
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli 7,67
2 Þórdís Inga Pálsdóttir Hólmi frá Kaldbak 7,29
3 Henna Johanna Sirén Herjann frá Eylandi 7,21
4 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum 7,00
5 Hlynur Guðmundsson Sólon frá Ljósalandi í Kjós 6,42
6 Bergrún Ingólfsdóttir Árvakur frá Kálfholti 5,83

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar