Kristrún Frosta vakti athygli

  • 15. mars 2026
  • Fréttir
Stígsdagurinn haldinn hátíðlegur

Hestamennska og hrossarækt á að vera skemmtileg og til þess að uppfylla það gerir fólk ýmislegt sér til skemmtunar. Einn dagur er haldinn árlega að Skipaskaga einmitt með því markmið og ber hann nafnið Stígsdagurinn.

Guðbrandur Stígur í miðið heldur í hestinn Myrkva frá Skeggstöðum sem er undan Stein frá Stíghúsi ásamt þeim aðilum sem gefa honum hreinskilið mat á gripunum

„Þetta hófst allt saman fyrir þremur árum og því var í ár þriðja skiptið sem Stígsdagurinn er haldinn hátíðlegur á Skipaskaga. Þetta byrjaði með því að við Jón Árnason ræddum það að ég kæmi með mín ungu hross til þeirra og við myndum bjóða góðu og skemmtilegu fólki til þess að safnast þar saman og gefa mér hreinskilið mat á þessa gripi.“ Segir Guðbrandur Stígur Ágústsson sem ræktar hross frá Stíghúsi.

Folaldið Kristrún Frosta vakti verðskuldaða athygli þá helst vegna nafngiftinnar þar sem í hópnum eru margir sem deila ekki pólítískum skoðunum með Guðbrandi Stíg

„Þarna eru margir sem telja sig hafa fundið upp hestamennskuna og hrossaræktina og þykjast hafa vit á öllu því sem henni tengist. Hrossunum mínum er stillt upp og þau látinn í framhaldinu hreyfa sig í reiðhöllinni. Þarna eru margir sem liggja ekkert á skoðunum sínum og gefa mér hreinskilið mat, ég tek mismikið mark á þeim að sjálfsögðu, en fyrst og fremst er gaman að hittast og spá og spekulera í hrossum.

Þorgeir Ólafsson stillir hér upp ung stóðhestinum Katlari frá Steinnesi

Samkvæmt heimildum Eiðfaxa voru brauðterturnar í ár eitt af því sem stóð upp úr á þessari skemmtun og allir voru kátir og glaðir og fóru sáttir heim. Eru slíkir dagar til eftirbreytni og væri gaman að fá ábendingar um fleiri jákvæðar og skemmtilegar fréttir úr hrossaræktinni til að deila með lesendum Eiðfaxa.

Guðbrandur Stígur sparar ekkert til í veitingum líkt og þessar brauðtertur bera gott vitni um

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar