Reiðnámskeið fyrir börn með sér- og stuðningsþarfir hjá Sleipni

  • 14. mars 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Elísabetu Sveinsdóttur
Hestamannafélagið Sleipnir kynnir nú nýtt og spennandi framtak þar sem börnum með hvers konar sér- og stuðningsþarfir býst tækifæri til að kynnast hestinum í öruggu umhverfi. Verkefnið hlaut styrk úr Hvatasjóði HSK, sem gerir félaginu kleift að leggja sérstaka áherslu á þennan hóp.

Umsjón með námskeiðinu er í höndum Elísabetar Sveinsdóttur, sem hefur víðtæka reynslu af vinnu með börnum með sérþarfir. Henni til fulltingis verður Birna Káradóttir, en þær leggja ríka áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og öryggi.

Til að tryggja sem besta upplifun hefur verið fjárfest í sérstökum búnaði, þar á meðal sérhönnuðum hnakk fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning í hnakknum.

Í viðtali sem Arnar Bjarki tók við Elísabetu er sagt nánar frá verkefninu, undirbúningi þess og framhaldi. Viðtalið má horfa á hér að neðan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar