Fjóla og Spira sigra í fimmgangi Áhugamannadeildar Norðurlands

  • 15. mars 2026
  • Fréttir

Lið Laugarhvamms fagnar sigri í liðakeppni í fimmgangi

Lið Laugarhvamms á toppnum

Keppni í fimmgangi fór fram í gær, sunnudaginn 14.mars, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Var þetta annað mótið í mótaröðinni en næst verður keppt í tölti á Akureyri þann 11.apríl og er það lokamótið. Keppt er í flokki meira- og minna varna áhugamanna og voru það alls 63 knapar og hestar sem tóku þátt í fimmgangi.

Í flokki meira vanra sigraði Spire Cecilina Ohlsson á Verði frá Feti. Hún leiddi að lokinni forkeppni með 6,13 og í A-úrslitum jók hún enn frekar á forskot sitt og stóð uppi sem sigrvegari með 6,60 í einkunn. Önnur varð Elina Schriver á Sinfoníu frá Hofi með 6,10 í einkunn og í þriðja sæti varð Greta Brimrún Karlsdóttir á Brimdal frá Efri-Fitjum með 5,93.

Spira stendur efst á palli í flokki meira vanra áhugamanna

Í flokki þeirra knapa sem eru minna vanir sigraði Fjóla Viktorsdóttir á Snældu frá Syðra-Skörðugili. Líkt og Spire að þá leiddi hún nokkuð örugglega að lokinni forkeppni með einkunnina 5,83. Í úrslitunum bætti hún um betur og hlaut 6,33 í einkunn og sigurinn nokkuð öruggur. Önnur varð Sigríður K. Sverrisdóttir á Sóldögg frá Króksstöðum með 6,11 og í þriðja sætinu Eva-Lena Lohi á Klifu frá Galtanesi með 5,42 í einkunn.

Efstu knapar í flokki minna vanra knapa, Fjóla Viktorsdóttir efst á palli

Stigahæsta liðið í fimmgangi og því sigurvegari í liðakeppninni var lið Laugarhvamms með 88 stig í öðru sæti varð N1/Smiðjan með 72 stig og Syðra-Skörðugil með 69 stig. Þessi sömu lið raða sér á toppinn í heildarstigakeppni liða og er það lið Laugarhvamms sem leiðir þar með 138 stig, N1/Smiðjan í öðru sæti með 126 stig og í því þriðja lið Syðra-Skörðugils með 115,5 stig.

Heildarsúrslit

Fimmgangur F2
Áhugamenn meira vanir
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Spire Cecilina Ohlsson Vörður frá Feti 6,13
2 Greta Brimrún Karlsdóttir Brimdal frá Efri-Fitjum 5,93
3 Einar Ben Þorsteinsson Paradís frá Gullbringu 5,80
4 Eline Schriver Sinfónía frá Hofi 5,70
5 Aldís Ösp Sigurjónsd. Elmar frá Staðarhofi 5,67
6-7 Einar Kristján Eysteinsson Fiðla frá Tjarnarlandi 5,60
6-7 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti 5,60
8-9 Jón Kristófer Sigmarsson Jóndís frá Hæli 5,47
8-9 María Marta Bjarkadóttir Vermir frá Hólabrekku 5,47
10-11 Gracina Fiske Demantur frá Vindheimum 5,40
10-11 Mathilde Larsen Sölvi frá Fornhaga II 5,40
12 Ólöf Sigurlína Einarsdóttir Stika frá Skálakoti 5,27
13 Kolbrún Grétarsdóttir Álfamær frá Hellnafelli 5,23
14 Sveinn Brynjar Friðriksson Andri frá Útnyrðingsstöðum 5,10
15 Guðmundur Þór Elíasson Fríða frá Varmalæk 1 5,07
16-17 Magnús Fannar Benediktsson Villimey frá Efra-Hvoli 4,97
16-17 Rúnar Júlíus Gunnarsson Kopar frá Hrafnagili 4,97
18 Steingrímur Magnússon Tími frá Tölthólum 4,93
19 María Ósk Ómarsdóttir Sólrósin frá Íbishóli 4,87
20 Kristín Hrönn Pálsdóttir Blær frá Dverghamri 4,70
21 Ásta Guðný Unnsteinsdóttir Gæla frá Grafarkoti 4,57
22 Diljá Ýr Tryggvadóttir Alda frá Hvalnesi 4,50
23 Jóhann Svanur Stefánsson Hátíð frá Draflastöðum 4,43
24 Hanna Maria Lindmark Orka frá Sleitustöðum 4,40
25 Ingunn Birna Árnadóttir Kostur frá Auðnum 4,37
26 Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir Birgitta frá Gilsárteigi 4,13
27 Jón Pétur Ólafsson Una frá Staðartungu 4,07
28 Guðrún Margrét Steingrímsdóttir Eyjasól frá Litlu-Brekku 3,83
29 Hreinn Haukur Pálsson Tvistur frá Garðshorni 3,80
30 Helga Valbjörnsdóttir Kapall frá Hlíðarbergi 3,37
31 Eyþór Þorsteinn Þorvarsson Sigurdís frá Efri-Fitjum 3,17
32 Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson Íþrótt frá Hólum 0,00
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Spire Cecilina Ohlsson Vörður frá Feti 6,60
2 Eline Schriver Sinfónía frá Hofi 6,10
3 Greta Brimrún Karlsdóttir Brimdal frá Efri-Fitjum 5,93
4 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti 5,83
5 Einar Ben Þorsteinsson Paradís frá Gullbringu 5,76
6 Aldís Ösp Sigurjónsd. Elmar frá Staðarhofi 4,26

 

Fimmgangur F3
Áhugamenn – minna vanir
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Fjóla Viktorsdóttir Snælda frá Syðra-Skörðugili 5,83
2-3 Hrefna Hafsteinsdóttir Taktur frá Bakkagerði 5,03
2-3 Eva-Lena Lohi Klifa frá Galtanesi 5,03
4 Sigríður K Sverrisdóttir Sóldögg frá Króksstöðum 5,00
5 Jóhann Albertsson Vinur frá Eyri 4,93
6 Guðlaug Reynisdóttir Þula frá Bringu 4,87
7 Fríða Marý Halldórsdóttir Marel frá Hvammstanga 4,87
8 Jakob Víðir Kristjánsson Hnokkadís frá Stóradal 4,73
9 Ester Anna Eiríksdóttir Akkur frá Gásum 4,47
10 Magnús Ásgeir Elíasson Dimmir frá Stóru-Ásgeirsá 4,43
11 Hákon Arnarson Drift frá Hraunholti 4,30
12-13 Guðmundur Sigfússon Hnoðri frá Laugabóli 4,20
12-13 Melanie Hallbach Maísól frá Stormi 4,20
14-15 Berglind Ösp Viðarsdóttir Óðinn frá Dalvík 4,17
14-15 Elín María Jónsdóttir Sjonni frá Árhóli 4,17
16 Nele Mahnke Freyr frá Varmalæk 1 3,97
17 Ásdís Karen Hauksdóttir Aþena frá Hrafnagili 3,90
18 Rósa Emilsdóttir Dís frá Björgum 4 3,83
19 Hugrún  Lísa Heimisdóttir Blíða frá Sigríðarstöðum 3,73
20-21 Erla Guðbjörg Leifsdóttir Skarði frá Flagveltu 3,67
20-21 Stefán Berg Ragnarsson Sónata frá Hjarðartúni 3,67
22 Steinunn Steinþórsdóttir Rjóð frá Hveragerði 3,63
23-24 Björgvin Antonsson Drottning frá Hólabrekku 3,53
23-24 Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir Erpur frá Syðra-Kolugili 3,53
25 Þórir Áskelsson Hilmir frá Húsey 3,43
26 Helena Rut Arnardóttir Flumbri frá Teigabóli 3,30
27 Stefanía Malen Stefánsdóttir Hugleikur frá Skriðufelli 3,00
28 Friðjón Geir Ólafsson Viðja frá Skriðu 2,53
29 Sólbjört Júlía Óskarsdóttir Von frá Reyðarfirði 2,47
30 Soffía Jóhanna Majdotter Dalma Kolka frá Skagaströnd 2,40
31 Ríkey Nótt Tryggvadóttir Fjöður frá Sólvangi 2,10
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Fjóla Viktorsdóttir Snælda frá Syðra-Skörðugili 6,33
2 Sigríður K Sverrisdóttir Sóldögg frá Króksstöðum 6,11
3 Eva-Lena Lohi Klifa frá Galtanesi 5,42
4 Guðlaug Reynisdóttir Þula frá Bringu 4,94
5 Hrefna Hafsteinsdóttir Taktur frá Bakkagerði 4,58
6 Jóhann Albertsson Vinur frá Eyri 4,31

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar