„Tilhlökkun að fara suður og taka þátt í Degi reiðmennskunnar“
Árlega útskrifast reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum. Reiðkennaraefni skólans mæta nú suður á Dag Reiðmennskunnar um næstu helgi
Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks fer fram laugardaginn 21. mars næstkomandi. Á Degi reiðmennskunnar eru það reiðkennaraefni Háskólans á Hólum sem halda sýnikennslu. Sýningin hefst klukkan 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna.
Alls eru það 19 knapar talsins sem koma að norðan frá Hólum í Hjaltadal með hesta sína. „Gestir geta búist við fræðandi og skemmtilegri sýnikennslu þar sem við sýnum frá uppbyggingu góðrar þjálfunar á íslenska hestinum. Stemningin í hópnum og það er mikil tilhlökkun að fara suður og taka þátt í Degi reiðmennskunnar. Það er gaman að sá svona tækifæri til þess að sýna frá því sem við höfum verið að vinna að og vonumst við til þess að sem flestir komi og taki þátt í deginum með okkur.“ Segir Viktoría Von Ragnarsdóttir sem er í forsvari fyrir reiðkennaraefnin í samtali við Eiðfaxa.
Stórsýning Fáks
Um kvöldið fer svo fram Stórsýning Fáks sem hefst klukkan 20:00 og að sýningu lokinni verður stuð í anddyri reiðhallarinnar þar sem trúbadorinn Sigvaldi Helgi Gunnarsson heldur uppi stuði.
Miðasala hefst þriðjudaginn 17. mars í Hesta Kaupfélaginu í Víðidali en þar er opið á milli 15:00 og 18:00, virka daga. Einnig verður miðasala á stórsýningu í reiðhöllinni á laugardeginum frá klukkan 14:00 og í hurð um kvöldið.
Miðaverð er 3.500 kr. á fullorðna, 2.500 kr. fyrir unglinga og ungmenna og 1.500 kr fyrir börn 8-13 ára.
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum