Vel heppnuð sýnikennsla í Faxaborg

  • 16. mars 2026
  • Fréttir

Jakob á sýnikennslunni í Faxaborg. Ljósmynd: Randi Holaker

Jakob Svavar gaf innsýn í þjálfun sína

Það var þétt setið í stúkinni í Faxaborg síðastliðið miðvikudagskvöld þegar Jakob Svavar Sigurðsson hélt þar sýnikennslu sem vakti mikla hrifningu viðstaddra. Stemningin var til fyrirmyndar og margt hægt að læra af slíkum sýnikennslum er meðal þess sem segir í tilkynningu til Eiðfaxa frá þeim sem að sýnikennslunni komu.

Þar segir einnig að í sýnikennslunni hafi Jakob lagt ríka áherslu á grundvallarþætti í sinni þjálfun, svo sem mikilvægi réttrar líkamsbeiting og hvernig hann byggi upp sitt ábendingakerfi. Að mati Jakobs er lykilatriði að halda hestunum fúsum, glöðum og hafa stjórn á orku- og spennustigi þeirra.

Kvöldið var fræðan því margar góðar spurningar bárust úr stúkunni. Jakob svaraði þeim af yfirvegun og skýrleika, sem gerði það að verkum að gestir fóru heim með dýrmæt verkfæri í farteskinu fyrir sína eigin þjálfun.

„Jakob sýndi reiðmennsku til fyrirmyndar og gaf áhorfendum dýrmæta innsýn í vinnu sína með hestunum, og fyrir það þökkum við“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar