Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Dregið í rásröð fyrir Skeiðmót Meistaradeildar

  • 19. mars 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Fylgstu með í kvöld þegar dregið verður í rásröð í opinni dagskrá á vef Eiðfaxa og á EiðfaxaTV.

Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands en á laugardaginn verður skeiðmót deildarinnar og er þá keppt í gæðingaskeiði og 150 m. skeiði. Keppni hefst kl. 13:00 á en keppnin fer fram á Brávöllum á Selfossi. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.

Í fyrra voru það Árni Björn Pálsson og Álfamær frá Prestsbæ og lið TopReiter sem unnu gæðingaskeiðið og í 150 m. skeiðinu voru það Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði og lið Hjarðartúns liðaplattann.

Hér fyrir neðan getur fylgst með þegar dregið verður í rásröð fyrir skeiðmótið og þá sjáum við hvaða hesta knapar deildarinnar mæta með á föstudaginn. Útsending frá drættinum hefst klukkan 21:00. Umsjónarmaður er Hulda G. Geirsdóttir og með honum er að þessu sinni Sigurbjörn Bárðarson.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar