Flink alhliðahross í Suðurlandsdeild Eques
Efstu knapar í Atvinnumannaflokki í fimmgangi Suðurlandsdeildarinnar árið 2025
Fjórða grein Suðurlandsdeildarinnar Eques í hestaíþróttum fer fram á morgun, þriðjudag 24. mars. Keppt verður í fimmgangi í boði Eques og hefst keppni kl. 18:30. Húsið opnar 17:30 og verður veitingasalan á sínum stað. Mótið verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Að lokinni keppni í parafimi, slaktaumatölti og fjórgangi er það Lið Vöðla/Snilldarverk sem er á toppnum í liðakeppninni með 147,5 stig. Í öðru sæti er Bakkakot með 129 stig og jöfn í þriðja til fjórða sæti eru Árbakki/Árbæjarhjáleiga og Hestefli með 128 stig.
Í flokki atvinnumanna er enginn af þeim knöpum sem riðu til úrslita á síðasta keppnistímabili skráðir á þeim hestum sem þeir voru á þá. Á síðasta keppnistímabili var það Ásmundur Ernir Snorrason sem sigraði í keppni atvinnumanna í þessari grein, þá á Katli frá Hvolsvelli. Hann mætir nú á hryssunni Vök frá Efri-Brú. Á ráslistsa er að finna hross sem hafa gert það gott í fimmgangi og má þer nefna að Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir er á Krafti frá Svanavatni sem Hlynur Guðmundsson reið til A-úrslita í fyrra. Gústaf Ásgeir mætir á sigurvegara Slaktaumtöltsins, Gými frá Skúfslæk, en þeir hafa einnig gert það gott í fimmgangi og nokkrum sinnum farið yfir 7 í forkeppni.
Í áhugamannaflokknum mætir sigurvegarinn frá því í fyrra Jóhann G. Jóhannsson á Hafdísi frá Brjánsstöðum og gerir atlögu að því að verja titilinn. Theodóra Jóna Guðnadóttir varð í öðru sæti í fyrra á Sóla frá Þúfu í Landeyjum, hún mætir nú á Brimsól frá Þúfu í Landeyjum og systir hennar, Eyglóa Arna keppir á Sóla í flokki atvinnumanna. Þá er einnig á ráslista að finna par sem varð í fjórða sæti í fyrra en það er Sarah Maagaard Nielsen og Kiljan frá Miðkoti.
Ráslisti
|
Holl |
At/Á |
Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | Á | Þorbjörn Hreinn Matthíasson | Fröken frá Ásmúla | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 1 | Á | Kristinn Karl Garðarsson | Veigar frá Grafarkoti | Krappi |
| 2 | At | Dagbjört Skúladóttir | Spyrnir frá Bárubæ | Kastalabrekka |
| 2 | At | Selina Bauer | Fía frá Strandarhöfði | Húsasmiðjan |
| 3 | Á | Hannes Brynjar Sigurgeirson | Skorri frá Varmalandi | Vöðlar/Snilldarverk |
| 3 | Á | Brynja Pála Bjarnadóttir | Vörður frá Narfastöðum | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 4 | At | Ásdís Brynja Jónsdóttir | Háspenna frá Hofi | Wicked viking |
| 4 | At | Hlynur Guðmundsson | Dökkvi frá Miðskeri | Hestefli |
| 4 | At | Jón Ársæll Bergmann | Kjarval frá Skíðbakka III | Bakkakot |
| 5 | Á | Theodóra Jóna Guðnadóttir | Brimsól frá Þúfu í Landeyjum | Miðkot/Skeiðvellir |
| 5 | Á | Pernilla Therese Göransson | Blossi frá Hvalnesi | Húsasmiðjan |
| 6 | At | Katrín Eva Grétarsdóttir | Koltur frá Stóra-Bakka | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 6 | At | Ásmundur Ernir Snorrason | Vök frá Efri-Brú | Vöðlar/Snilldarverk |
| 7 | Á | Malou Sika Jester Bertelsen | Von frá Borgarnesi | Kastalabrekka |
| 7 | Á | Hallgrímur Birkisson | Amalía frá Þjóðólfshaga 1 | Krappi |
| 8 | At | Alma Gulla Matthíasdóttir | Skúmur frá Syðri-Úlfsstöðum | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 8 | At | Hulda Gústafsdóttir | Hringjari frá Efri-Fitjum | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 9 | Á | Jónas Már Hreggviðsson | Kolbeinn frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 9 | Á | Rúnar Freyr Rúnarsson | Mósart frá Gafli | Bakkakot |
| 10 | At | Katrín Sigurðardóttir | Haukur frá Skeiðvöllum | Miðkot/Skeiðvellir |
| 10 | At | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Kraftur frá Svanavatni | Hestefli |
| 11 | Á | Elín Hrönn Sigurðardóttir | Snilld frá Skeiðvöllum | Vöðlar/Snilldarverk |
| 11 | Á | Heiðdís Arna Ingvarsdóttir | Foringi frá Laxárholti 2 | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 12 | At | Eygló Arna Guðnadóttir | Sóli frá Þúfu í Landeyjum | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 12 | At | Fríða Hansen | Vargur frá Leirubakka | Kastalabrekka |
| 13 | Á | Marie Hollstein | Títan frá Margrétarhofi | Bakkakot |
| 13 | Á | Jóhann G. Jóhannesson | Hafdís frá Brjánsstöðum | Hestefli |
| 14 | At | Malin Marianne Andersson | Mjölnir frá Kálfsstöðum | Wicked viking |
| 14 | At | Sigurður Sigurðarson | Mórall frá Hlíðarbergi | Krappi |
| 15 | Á | Lilja Hrund Pálsdóttir | Lukka frá Þingási | Húsasmiðjan |
| 15 | Á | Emma Goltz | Bragi frá Reykjavík | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 16 | At | Hekla Rán Hannesdóttir | Víðátta frá Hrafnagili | Bakkakot |
| 16 | At | Stella Sólveig Pálmarsdóttir | Pyttla frá Strandarhöfði | Vöðlar/Snilldarverk |
| 17 | Á | Sarah Maagaard Nielsen | Kiljan frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| 17 | Á | Anne Röser | Náma frá Stóra-Hofi | Kastalabrekka |
| 18 | At | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Gýmir frá Skúfslæk | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 18 | At | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Brekkan frá Votmúla 1 | Krappi |
| 19 | Á | Elísabet Gísladóttir | Víkingur frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 19 | Á | Þórdís Sigurðardóttir | Hlíf frá Strandarhjáleigu | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 20 | At | Sigríkur Jónsson | Maístjarna frá Arnarhóli | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 20 | At | Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir | Stimpill frá Þúfum | Húsasmiðjan |
| 20 | At | Ólafur Þórisson | Assa frá Árheimum | Miðkot/Skeiðvellir |
| 21 | Á | Hulda Jónsdóttir | Grátur frá Hraunbæ | Hestefli |
| 21 | Á | Arney Ólöf Arnardóttir | Kveldúlfur frá Fákshólum | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
Flink alhliðahross í Suðurlandsdeild Eques
Keppnishross í Meistaradeild Líflands
Þórunn bar sigur úr býtum