Glódís og Vikar sigurvegarar í tölti
Glódís og Vikar. Ljósmynd: Carolin Giese
Þau voru mögnuð tilþrifin í töltkeppni Meistaradeildar Líflands á lokakvöldi deildarinnar sem nú er í gangi. Framundan er svo keppni í flugskeiði sem mun skera úr um hverjir standa uppi sem heildarsigurvegarar í einstaklings- og liðakeppni. Allt í þráðbeinni á EiðfaxaTV.
Glódís og Vikar sigra töltið
Að lokinni forkeppni var það Glódís Rún Sigurðardóttir sem efst stóð á Vikari frá Austurási með 8,57, í öðru sæti var Jakob Svavar á Skarpi frá Kýrholti með 8,43 í þriðja sætinu var svo Jón Ársæll á Spörtu frá Eystra-Fróðholti með 8,33 en það er mögnuð einkunn í fyrstu töltkeppni. Þá var það stjörnuparið Flosi Ólafsson og Brynja Kristinsdóttir á systkinunum Sunnu og Röðli frá Haukagili í Hvítársíðu, Brynja með 7,97 í einkunn og Flosi með 7,93.
A-úrslitin voru algjört augnakonfekt og þar fór saman frábærir knapar á glæsilegum hrossum. Glódís Rún hélt efsta sætinu á Vikari og hluat í einkunn 9,00, Jakob Svavar og Skarpur urðu í 2.sæti með 8,83 og í því þriðja Flosi Ólafsson og Röðull með 8,50.
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Vikar frá Austurási | 9,00 |
| 2 | Jakob Svavar Sigurðsson | Skarpur frá Kýrholti | 8,83 |
| 3 | Flosi Ólafsson | Röðull frá Haukagili Hvítársíðu | 8,50 |
| 4 | Jón Ársæll Bergmann | Sparta frá Eystra-Fróðholti | 8,33 |
| 5 | Brynja Kristinsdóttir | Sunna frá Haukagili Hvítársíðu | 8,06 |
Til B-úrslita kepptu þau Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum, Þorgeir Ólafsson á Aspari frá Hjarðartúni, Helga Una Björnsdóttir á Hrefnu frá Fákshólum og Árni Björn Pálsson á Krika frá Krika. Þau Ásmundur, Aðalheiður og Árni Björn voru þrír efstu knaparnir í einstaklingskeppni fyrir kvöldið og náðu sér í mikilvæg stig í þeirri keppni með því að komast í úrslit.
Það fór svo að Ásmundur Ernir og Hlökk stóðu efst í B-úrslitum með 8,78 í einkunn
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Ásmundur Ernir Snorrason | Hlökk frá Strandarhöfði | 8,78 |
| 7 | Þorgeir Ólafsson | Aspar frá Hjarðartúni | 8,50 |
| 8 | Helga Una Björnsdóttir | Hrefna frá Fákshólum | 8,17 |
| 9 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Flóvent frá Breiðstöðum | 7,67 |
| 10 | Árni Björn Pálsson | Kriki frá Krika | 7,50 |
Lið Hrímnir/Hest.is var stigahæsta liðið í töltkeppni og náði í mikilvæg stig!
Ásmundur í forystu fyrir skeiðið
Ásmundur heldur þar með forystu í einstaklingskeppninni fyrir flugskeiðið með 43,5 stig. Jöfn í 2.-3 sæti eru þau Aðalheiur Anna og Jakob Svavar með 39 stig í fjórða sæti er Árni Björn Pálsson með 36 stig og í því fimmta Jón Ársæll Bergmann með 33 stig.
| Ásmundur Ernir Snorrason | 43.5 |
| Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | 39 |
| Jakob Svavar Sigurðsson | 39 |
| Árni Björn Pálsson | 36 |
| Jón Ársæll Bergmann | 33 |
Í liðakeppninni er það lið Hjarðartúns sem er nú í forystu með 247,5 stig og skammt á eftir er lið Top Reiter/Sumarliðabæjar með 241 stig.
Það verður því nú barist fyrir öllum stigum í flugskeiðinu og spennandi að fylgjast með hvernig fer að lokum.
Staðan í liðakeppnin
| Hjarðartún | 247.5 |
| Top Reiter/Sumarliðabær | 241 |
| IB bílar | 185.5 |
| Hrímnir / Hest.is | 184.5 |
| Hestvit / Árbakki | 172 |
| Ganghestar / Margrétarhof | 165.5 |
Glódís og Vikar sigurvegarar í tölti
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar