Konráð og Kastor fljótastir í gegnum höllina

  • 27. mars 2026
  • Fréttir

Mynd frá verðlaunaafhendingu í flugskeiði árið 2025. Ljósmynd: Caroliin Giese

Top Reiter/Sumarliðabær með liðssigur í skeiði

Keppni í flugskeiði í Meistaradeild Líflands gekk hratt og vel fyrir sig og góðir tímar náðust. Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk bættu þar enn einni rós í hnappagatið í skeiðgreinum og unnu á tímanum 5,66 sekúndum.

Þá voru yfirburði liðs Top Reiter/Sumarliðabæjar ótvíræðir í þessari grein en fjórir knapar liðsins sem þátt tóku röðuðu sér í efstu fjögur sætin. Það er áður nefndur Konráð Valur á Kastor efstur, önnur varð Eyrún Ýr Pálsdóttir á Friðsemd frá Kópavog á 5,79 sekúndum, þriðji varð Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni á tímanum 5,86 og í því fjórða Teitur Árnason á sama tíma.  Eyrún Ýr keppti sem uppboðsknapi og taldi því ekki til stiga. Liðabikarinn varð því þeirra í flugskeiði.

Gaman er að segja frá því að þessir þrír efstu urðu einnig í sömu sætum í þessari grein í fyrra.

Nú styttist í að komi í ljós hverjir sigra í heildarstigakeppninni.

Niðurstaða í flugskeiði

Flugskeið 100m P2
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 5,66
2 Eyrún Ýr Pálsdóttir Friðsemd frá Kópavogi 5,79
3 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 5,86
4 Teitur Árnason Væta frá Leirulæk 5,86
5 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 5,87
6-7 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 5,97
6-7 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 5,97
8 Þorgeir Ólafsson Herborg frá Felli 5,99
9 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti 6,00
10 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk 6,07
11 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum 6,11
12 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 6,12
13-14 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni 6,13
13-14 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni 6,13
15 Jón Ársæll Bergmann Stirnir frá Laugavöllum 6,14
16-17 Hinrik Bragason Klókur frá Dallandi 6,17
16-17 Sigurður Vignir Matthíasson Gnúpur frá Dallandi 6,17
18 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 6,26
19 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað 6,34
20 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 6,44

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link