Góð tilþrif á Icehorse Festival í Herning
Tekla og Órion frá Lækjamóti sigurvegarar í slaktaumatölti. Ljósmynd: Anja Mogensen
Eitt stærsta innanhúsmót með íslenska hesta sem haldið er í Evrópu, Icehorse festival, fór fram í Herning í Danmörku um síðustu helgi. Um er að ræða íþróttakeppni, stóðhestakeppni og ýmsar aðrar uppákomur auk markaðstorga og almennrar gleði.
Keppt er í tveimur styrkleikaflokkum það er bæði meistaraflokki, þar sem einn knapi er inná í einu í forkeppni og einnig í greinum þar sem fleiri eru inn á og. stjórnað af þul. Góð þátttaka er jafnan í mótinu og góðir knapar og hestar á ráslista.
- Rasmus Møller Jensen og Röskur fra Skjød unnu tölt T1 með 7,78 í úrslitum
- Anne Frank Andrwesen og Vökull frá Leirubakka unnu fimmgang F1 með 7,19 í úrslitum
- Vicky Eggertsson og Tristan frá Stekkhólum unnu fjórgang V1 með 7,00 í úrslitum
- Tekla Petersson og Óríon frá Lækjamóti unnu slaktaumatölt T2 með 7,50 í úrslitum
- Hljómur frá Auðsholtshjáleigu sýndur af Dennis Hedebo Johansen sigraði í stóðhestakeppni
Icehorse verður nú í framtíðinni haldið á tveggja ára fresti og er því næsta mót árið 2028.
Hægt er að kynna sér nánar úrslit mótins á IceTest með því að smella hér.

Rasmus Mōller og Röskur. Ljósmynd: Anja Mogensen
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS