Meistaradeild KS í hestaíþróttum Barist til þrautar í Meistaradeild KS

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Lið Storm Rider sigraði í liðakeppni síðasta árs

Lokakvöldið fer fram föstudaginn 17.apríl

Lokamót Meistaradeildar KS fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki annað kvöld, föstudaginn 17, aprí, hefst keppni klukkan 18:00. Fóðurblandan býður áhorfendum frítt í sal og mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Barátta á toppnum í heildarstigakeppni

Keppt er bæði í tölti og flugskeiði í gegnum höllina og sé tekið mið af ráslista verður sú keppni spennandi og það sama má segja um einstaklings- og liðakeppni þar sem mjótt er á munum. Í einstaklingskeppni leiðir Vera Evi Schneiderchen með 30 stig en skammt á eftir henni er Mette Mannseth með 27 stig. Í þriðja sætinu er svo Þórarinn Eymundsson með 21 stig. Mörg stig eru í boði og því gætu aðrir knapar sem neðar eru blandað sér í toppbaráttu ef þessum knöpum tekst ekki að ná sér í stig. Í liðakeppninni er baráttan um sigur á milli liðs Þúfna, sem leiðir með 318 stig og lið Hrímnis/Hestkletts sem er í öðru sæti 8 stigum á eftir Þúfum með 310 stig. Það verður áhugavert að sjá hvernig til tekst hjá liðsmönnum þessara liða að næla í mikilvæg stig.

Staðan í liðakeppni
  1. Þúfur 318 stig
  2. Hrímnir/Hestklettur 310 stig
  3. Hofstorfan/550 266,5 stig
  4. Lífland 323 stig
  5. íbishóll 186,5
  6. Storm Rider 168,5 stig
  7. Bústólpi 151,5 stig
  8. Uppsteypa 151 stig
  9. Exar 144,5 stig
Staðan í einstaklingskeppni – 10 efstu
  1. Vera Evi Schneiderchen 30 stig
  2. Mette Mannseth 27 stig
  3. Þórarinn Eymundsson 21 stig
  4. Þórey Þula Helgadóttir 20 stig
  5. Barbara Wenzl 18 stig
  6. Guðmar Freyr Magnússon 18 stig
  7. Herdís Björg Jóhannsdóttir 14 stig
  8. Lilja Dögg Ágústsdóttir 13 stig
  9. Agnar Þór Magnússon 13 stig
  10. Kristján Árni Birgisson 12,5 stig

 

Í töltkeppni síðasta árs í Meistaradeild KS voru það þau Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson sem voru í fyrsta og öðru sæti. Metta sigraði þá á Hannibal frá Þúfum með 7,94 í einkunn og Þórarinn varð annar á Náttfara frá Varmalæk með 7,72. Metta mætir nú á öðrum hesti úr eigin ræktun, Grímari frá Þúfum, en Þórarinn er á Náttfara. Af öðrum knöpum sem voru í A-úrslitum í fyrra er enginn þeirra á meðal þátttakenda nú. Elvar Einarsson er skráður á Muna frá Syðra-Skörðugili en þeir unnu B-úrslitin árið 2025 með 7,39. Vera er skráð á hesti sínum Feyki frá Selfossi sem hefur skilað henni mörgum stigum og meðal annars sigri í fjórgangi. Auk undantalinna knapa eru margir flottir tölthestar skráðir til leiks sem hafa eða gætu gert það gott í töltkeppni. Alls er það 28 pör sem keppa í töltkeppni þar af eru tveir Villikettir, fyrir lið Exar og Líflands, auk uppboðsknapa sem er Unnur Sigurpálsdóttir á Þresti frá Kolsholti II.

Ráslisti í tölti
Knapi Hestur Lið
Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðivöllum fremri Uppsteypa
Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey Exar
Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk Hrímnir /Hestklettur
Egill Már Þórsson Blæja frá Króksstöðum Bústólpi
Mette Mannseth Grímar frá Þúfum Þúfur
Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum Hofstorfan /550
Agnar Þór Magnússon Birta frá Íbishóli Íbishóll
Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki StormRider
Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum Lífland
Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi Hrímnir /Hestklettur
Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili StormRider
Björg Ingólfsdóttir Hákon frá Vatnsleysu Lífland
Björgvin Helgason Kóngur frá Gunnarsstöðum Bústólpi
Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum Íbishóll
Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum Exar
Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I Hofstorfan /550
Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum Uppsteypa
Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum Þúfur
Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú Hrímnir /Hestklettur
Karítas G. Thoroddsen Tenór frá Miðhúsum Bústólpi
Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan /550
Villiköttur Exar
Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum Þúfur
Magnús Bragi Magnússon Jósteinn frá Íbishóli Íbishóll
Uppboðssæti-Unnur Sigurpálsdóttir Þröstur frá Kolsholti 2
Þorsteinn Björnsson Ugla frá Hólum Uppsteypa
Villiköttur Lífland
Julian Veith Fáni frá Sperðli StormRider
Skeiðkeppni

Í skeiðinu getur svo allt gerst en óhætt er að segja að Konráð Valur á Kastori frá Garðshorni sé sigurstranglegastur, vann þessa grein m.a. í fyrra. Þórgunnur Þórarinsdóttir varð í þriðja sæti í þessari keppni í fyrra á Sviðri frá Reykjavík en nú keppir á honum Kristján Árni Birgisson. Þá eru fljótir skeiðhestar sem náð hafa góðum árangir á landsvísu skráðir til leika líkt og Tvistur frá Garðshorni, sem náði besta tíma ársins í 100 metra skeiði á síðast ári settan hér á landi, þá með Áróru Heiðbjörtu sem knapa en nú er á honum Herjólfur Hrafn Stefánsson. Agnar Þór er á Kvisti frá Kommu sem hefur náð frábærum árangri í skeiðgreinum það sama má segja um Mette Mannseth á Vívaldi frá Torfunesi, Daníel Gunnarsson á Smára frá Sauðanesi og Matthías Sigurðsson á Gnúpi frá Dallandi, svo dæmi séu tekinn.

Ráslisti í skeiði
Flugskeið 100m P2 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
1 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi Hrímnir /Hestklettur
2 Uppboðssæti-Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum
3 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum Lífland
4 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá Þúfur
5 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu Bústólpi
6 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi Hofstorfan /550
7 Freyja Amble Gísladóttir Dalvík frá Dalvík Íbishóll
8 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga Uppsteypa
9 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku StormRider
10 Emma Thorlacius Númi frá Hólum Exar
11 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík Hrímnir /Hestklettur
12 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Íbishóll
13 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Stóra-Hofi Lífland
14 Sigrún Rós Helgadóttir Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan /550
15 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi Þúfur
16 Uppboðssæti-Sigurður Heiðar Birgisson Tinna frá Ríp
17 Herjólfur Hrafn Stefánsson Tvistur frá Garðshorni Bústólpi
18 Þorsteinn Björnsson Fála frá Hólum Uppsteypa
19 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki StormRider
20 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum Exar
21 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 Lífland
22 Uppboðssæti-Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu
23 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi StormRider
24 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju Bústólpi
25 Herdís Björg Jóhannsdóttir Gosi frá Staðartungu Uppsteypa
26 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr. Hrímnir /Hestklettur
27 Kristófer Darri Sigurðsson Egla frá Hólum Hofstorfan /550
28 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum Exar
29 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu Íbishóll
30 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi Þúfur

 

Allir hestaunnendur eru hvattir til að fylgjast með lokamóti Meistaradeildar KS hvort sem það er í sal eða í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link