Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu
Síðasta mótið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum fer fram laugardaginn 18. apríl á mótssvæði Sörla í Hafnarfirði og hefst mótið klukkan 10:00. Keppt verður í tveimur skeiðgreinum þ.e. gæðinga- og 100 metra skeiði. Mótið er keyrt samhliða skeiðmóti Samskipadeildinni – Áhugamannadeildar Spretts.
Mótið er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og verður dregið í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV.
Gæðingaskeið
Á þátttökulistanum í gæðingaskeiði eru mörg pör sem hafa gert það gott í greininni. Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti eru ofarlega á stöðulista síðasta ár, þeir hlutu hæst einkunnina 7,96 á WR Íþróttamóti Geysis. Þá er Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Hildur frá Feti skráð til leiks en þau eru ríkjandi sigurvegarar í þessari grein í 1.deildinni, hlutu 7,63 í einkunn á síðasta tímabili. Ingibergur Árnason og Flótti frá Meiri-Tungu voru þá í þriðja sæti með 7,33 í einkunn. Þá hafa þau Jóhann Kr. Ragnarsson og Þórvör frá Lækjarbotnum verið á meðal allra stekustu para í gæðingaskeiði undanfarinn ár og verið í toppbaráttu á Íslands og Landsmótum. Þá hefur Heiða frá Skák, sem nú er setinn af Þórdísu Ingu Pálsdóttur, hefur gert það ákaflega gott í gæðingaskeiði m.a. með Eyrúnu Ýr Pálsdóttur sem knapa. Sama má segja um Bresa frá Efri-Hrepp sem Birna Olivia keppir á. Fleiri hesta og eða pör sem hafa náð góðum árangri mætti telja upp en spennandi verður að sjá hvernig knöpum tekst til í þessari krefjandi keppnisgrein.
Ráslisti
| Friðdóra Friðriksdóttir | Toppur frá Sæfelli |
| Siguroddur Pétursson | Tign frá Hrauni |
| Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 |
| Þórdís Inga Pálsdóttir | Heiða frá Skák |
| Rakel Katrín Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti |
| Hermann Arason | Þota frá Vindási |
| Ólafur Þórisson | Assa frá Árheimum |
| Haukur Tryggvason | Lóa frá Ásbrú |
| Helgi Þór Guðjónsson | Dimma frá Syðri-Reykjum 3 |
| Hafþór Hreiðar Birgisson | Möndull frá Halakoti |
| Katla Sif Snorradóttir | Gimsteinn frá Víðinesi 1 |
| Ólöf Rún Guðmundsdóttir | Hraundís frá Selfossi |
| Haukur Bjarnason | Þórfinnur frá Skáney |
| Birna Olivia Ödqvist | Bresi frá Efri-Hrepp |
| Hlynur Guðmundsson | Kraftur frá Svanavatni |
| Reynir Örn Pálmason | Lína frá Miklaholtshelli |
| Benedikt Ólafsson | Tobías frá Svarfholti |
| Jóhann Kr. Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum |
| Frederica Fagerlund | Salómon frá Efra-Núpi |
| Anna Valdimarsdóttir | Sólon frá Bræðraá |
| Ævar Örn Guðjónsson | Elja frá Óðinstorgi |
| Páll Bragi Hólmarsson | Snjall frá Austurkoti |
| Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Hildur frá Feti |
| Thelma Dögg Tómasdóttir | Sirkus frá Torfunesi |
100 metra skeið
100 metra skeið er ákfalega skemmtileg keppnisgrein þar sem eingöngu tímataka sker úr um sigurvegara og verða knapar því að tefla djarft. Ingibergur Árnason og Sólveig eru frábært keppnispar og var þeirra besti tími á síðasta ári 7,47 sekúndur. Friðdóra Friðriksdóttir er á Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði, en hennar besti tími á síðasta ári var 7,64 sekúndur. Þórdís Inga Pálsdóttir er á Friðsemd frá Kópavogi sem er öskufljót og hefur farið á undir 7,50 sekúndum í 100 metra skeiði. Benedikt Ólafsson og Vonardís frá Ólafshaga voru ofarlega í 100 metra skeiði á þessu sama móti árið 2025 á 7,83 sekúndum. Katla Sif Snorradóttir teflir fram Djarfi frá Litla-Hofi, Sara Dís systir Kötlu hefur gert það gott á honum og var þeirra besti tími 7,70 árið 2025. Páll Bragi og Snjall frá Austurkoti gerðu það mjög gott í 100 metra skeiði á síðasta ári og unnu þessa grein á Suðurlandsmóti árið 2025 á tímanum 7,61. Eins og lesa má úr þessum upplýsingum eru allar líkur á að við fáum að sjá snarpa og fallega skeiðspretti í 100 metra skeiði 1.deildar Hringdu.
Ráslisti í 100 metra skeiði
| Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | Flæðir frá Stykkishólmi |
| Friðdóra Friðriksdóttir | Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði |
| Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ |
| Haukur Tryggvason | Lóa frá Ásbrú |
| Ólafur Þórisson | Edda frá Túnprýði |
| Eysteinn Tjörvi Kristinsson | Gná frá Borgarnesi |
| Birna Olivia Ödqvist | Salka frá Fákshólum |
| Þórdís Inga Pálsdóttir | Friðsemd frá Kópavogi |
| Rakel Katrín Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti |
| Thelma Dögg Tómasdóttir | Von frá Ási 1 |
| Hulda Sveinbjörnsdóttir | Amalía frá Þjóðólfshaga 1 |
| Anna Valdimarsdóttir | Jökull frá Stóru-Ásgeirsá |
| Katla Sif Snorradóttir | Djarfur frá Litla-Hofi |
| Hlynur Guðmundsson | Stólpi frá Ási 2 |
| Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir | Klaustri frá Hraunbæ |
| Frederica Fagerlund | Salómon frá Efra-Núpi |
| Jóhann Kr. Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum |
| Vilborg Smáradóttir | Klókur frá Dallandi |
| Reynir Örn Pálmason | Lína frá Miklaholtshelli |
| Benedikt Ólafsson | Vonardís frá Ólafshaga |
| Páll Bragi Hólmarsson | Snjall frá Austurkoti |
| Helgi Þór Guðjónsson | Kolbeinn frá Hrafnsholti |
| Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Hildur frá Feti |
| Þorvaldur Logi Einarsson | Lukka frá Syðra-Langholti |
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands
Rósa sigurvegari í gæðingaskeiði Samskipadeildar