WR íþróttamót Sleipnis og Skeiðleikar Skeiðfélagsins
Hið geysivinsæla WR Íþróttamót Sleipnis fer fram dagana 12-17.maí 2026 á Brávöllum á Selfossi. Samhliða íþróttmótinu verða haldnir fyrstu skeiðleikar Skeiðfélagsins á þessu ári. Íþróttamótið er opið mót þó með takmörkunum og hámarksfjölda keppenda í hverri grein að undanskildum skeiðleikum, þar sem enginn hámarksfjöldi er á þátttakendum.
Móti er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Skráningargjöld;
Meistaraflokkur & Ungmennaflokkur – 9500kr
1 & 2.flokkur – 9000
Unglingaflokkur & barnaflokkur – 7000
Skeiðleikar – 6000kr pr. grein
Þá mun mótanefndin bjóoðum pollum og pæjum að mæta og sýna sig. Skráning á þeim fer í gegnum sportfeng, börn þurfa vera skráð í félag.
Hámarksskipting skiptist þannig;
T1 – Meistaraflokkur – 40
T2 – Meistaraflokkur – 20
V1 – Meistaraflokkur – 30
F1 – Meistaraflokkur – 30
PP1 – Meistaraflokkur – 25
T1 – Ungmennaflokkur – 25
T2 – Ungmennaflokkur – 20
V1 – Ungmennaflokkur – 25
F1 – Ungmennaflokkur – 20
PP1 – Ungmennaflokkur – 15
T3 – 1.flokkur – 20
T4 – 1.flokkur – 10
V2 – 1.flokkur – 25
F2 – 1.flokkur – 20
PP1 – 1.flokkur – 10
T3 – 2.flokkur – 15
V2 – 2.flokkur – 10
T7 – 2.flokkur – 10
F2 – 2.flokkur – 10
T4 – Unglingaflokkur – 10
T3 – Unglingaflokkur – 15
V2 – Unglingaflokkur – 15
F2 – Unglingaflokkur – 15
T7 – Unglingaflokkur – 10
V2 – Barnaflokkur – 15
T3 – Barnaflokkur – 10
T7 – Barnaflokkur – 10
Skeiðleikar – Fullorðinsflokkur 100m, 250m og 150m – 6000kr.
Mótanefnd hvetur til metnaðar við skráningu, markmiðið er að allir geti fundið flokk við hæfi þar sem þeir geta á jafnréttisgrundvelli keppt og sett sér ný markmið eftir því sem reynslan vex.
Komi uppá ágreiningur um flokkaskiptingu keppenda, hefur mótsstjórn úrskurðarvald. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka.
Afskráningar, fyrirspurnir eða pláss á biðlista skal senda email á ithrottamot@sleipnir.is
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands
Gabríel og Isi-Pack sigra í Meistaradeild Líflands og æskunnar
Lið Fossvéla og Erla Guðný sigurvegarar Samskipadeildar