Hestamannafélagið Sörli Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla hefst á miðvikudaginn

  • 4. maí 2026
  • Fréttir

Frá verðlaunaafhendingu á Hafnarfjarðarmeistaramóti árið 2025. Ljósmynd: Facebooksíða Sörla

Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV

Framundan í þessari viku á EiðfaxaTV er Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla sem fram fer á Hraunhamarsvellinum, keppni hefst miðvikudaginn 6.maí og lýkur sunnudaginn 10.maí. Er þetta fyrsta alþjóðlega Íþróttamót ársins á Íslandi og eru mörg af fremstu keppnispörum landsins skráð til leiks. Aðalstyrktaraðili mótsins er Vélsmiðja Orms og Víglundar.

Aðstaða Hestamannafélagsins Sörla er glæsileg í alla staði og þar fer m.a. fram í sumar Íslandsmót fullorðinna og ungmenna, það er því kjörið fyrir hestaáhugafólk að mæta í Hafnarfjörðinn og fylgjast með sterkri keppni en fyrir þá sem ekki eiga heimangengt verður mótið að sjálfsögðu sýnt í beinni á EiðfaxaTV.

Hægt er að kynna sér ráslista, dagskrá og fylgjast með niðurstöðu mótsins á snjallforritinu HorseDay.

Drög að dagskrá Hafnarfjarðarmeistaramóti Vélsmiðju Orms og Víglundar

Miðvikudagur 6. maí
13:00-14:00 Fjórgangur V1 Meistaraflokkur blokk 1
14:05-15:10 Fjórgangur V1 Meistaraflokkur blokk2
15:10-15:30 Kaffihlé
15:30-16:30 Fjórgangur V1 Ungmennaflokkur blokk 1
16:35-17:40 Fjórgangur V1 Ungmennaflokkur blokk 2
17:45-18:25 Fjórgangur V5 Barnaflokkur
18:30-19:15 Fjórgangur V2 Barnaflokkur
19:15-19:45 Kvöldmatarhlé
19:45-20:45 Fjórgangur V2 Unglingaflokkur
20:50-21:30 Fjórgangur V2 1. flokkur

Fimmtudagur 7. maí
13:00-13:55 Fimmgangur F1 Meistaraflokkur blokk 1
14:00-14:20 Fimmgangur F1 Meistaraflokkur blokk 2
14:25-15:15 Fimmgangur F1 Ungmennaflokkur
15:15-15:30 Kaffihlé
15:30-16:10 Slaktaumatölt T2 Meistaraflokkur
16:15-16:55 SlaktaumatöltT2 Ungmennaflokkur
17:00-17:20 Slaktaumatölt T4 1. flokkur
17:20-18:00 Tölt T7 2. flokkur
18:00-18:20 Slaktaumatölt T4 Barnaflokkur
18:20-19:10 Kvöldmatarhlé
19:10-19:30 Tölt T7 Unglingaflokkur
19:30-19:50 Tölt T7 Barnaflokkur
19:50-20:10 Slaktaumatölt T4 Unglingaflokkur
20:15-21:25 Fjórgangur V2 2. flokkur

Föstudagur 8. maí
13:30-14:20 Tölt T1 Meistaraflokkur
14:25-15:05 Tölt T1 Ungmennaflokkur
15:05-15:20 Kaffihlé
15:20-16:15 Fimmgangur F2 Unglingaflokkur blokk 1
16:20-16:45 Fimmgangur F2 Unglingaflokkur blokk 2
16:45-17:30 Tölt T3 1. flokkur
17:35-17:55 Tölt T3 Barnaflokkur
17:55-18.30 Tölt T3 Unglingaflokkur
18:30-19:00 Kvöldmatarhlé
19:00-19:20 Tölt T3 2. flokkur
19:25-20:30 Fimmgangur F2. 1. flokkur

Laugardagur 9. maí
10:00-10:25 B-úrslit fjórgangur V2 1. flokkur
10:25-10:50 B-úrslit fjórgangur V2 2. flokkur
10:55-11:15 B-úrslit fjórgangur V5 Barnaflokkur
11:15-11:40 B-úrslit fjórgangur V2 Barnaflokkur
11:40-11:55 B-úrslit fjórgangur V2 Unglingaflokkur
11:55-12:45 Hádegismatur
12:45-13:20 B-úrslit fjórgangur V1 Meistaraflokkur
13:25-14:45 B-úrslit fjórgangur V1 Ungmennaflokkur
14:50-15:05 B-úrslit tölt T7 2.flokkur
15:00-15:20 Kaffihlé
15:20-15:40 B-úrslit tölt T7 Barnaflokkur
15:40-16:05 B-úrslit tölt T3 1. flokkur
16:10-16:25 B-úrslit tölt T7 2. flokkur
16:25-16:45 A-úrslit slaktaumatölt T4 Barnaflokkur
16:45-17:05 A-úrslit slaktaumatölt T4 Unglingaflokkur
17:10-17:30 A-úrslit slaktaumatölt T4 1.flokkur
17:30-17:55 A-úrslit slaktaumatölt T4 Ungmennaflokkur
17:55-18:20 A-úrslit slaktaumatölt T4 Meistaraflokkur
18:00-19:10 Matarhlé
19:10-20:30 Gæðingaskeið PP1 allir flokkar

Sunnudagur 10. maí
09:15-09:30 A-úrslit tölt T7 Unglingaflokkur
09:30-09:55 A-úrslit fjórgangur V2 Barnaflokkur
09:55-10:20 A-úrslit fjórgangur V2 Unglingaflokkur
10:20-10:45 A-úrslit fjórgangur V2 2. flokkur
10:54-11:05 A-úrslit fjórgangur V5 Barnaflokkur
11:05-11:20 Kaffihlé
11:20-11:45 A-úrslit fjórgangur V2 1.flokkur
11:45-12:05 A-úrslit fjórgangur V1 Ungmennaflokkur
12:05-12:30 A-úrslit fjórgangur V1 Meistaraflokkur
12:30-12:55 Hádegishlé
13:00-13:15 Pollaflokkur
13:30-14:05 100m skeið
14:05-14:25 A-úrslit tölt T7 2 flokkur
14:25-14:40 A-úrslit T7 Barnaflokkur
14:25-14:55 A-úrslit fimmgangur F2 Unglingaflokkur
14:55-16:25 A-úrslit fimmgangur F2 1.flokkur
16:25-16:55 A-úrslit fimmgangur F1 Ungmennaflokkur
16:55-17:25 A-úrslit fimmgangur F1 Meistaraflokkur
17:25-17:45 Kaffihlé
17:45-18:05 A-úrslit tölt T3 Barnaflokkur
18:05-18:25 A-úrslit tölt T3 Unglingaflokkur
18:25-18:45 A-úrslit tölt T3 2. flokkur
18:45-19:05 A-úrslit tölt T3 1. flokkur
19:05-19:35 A-úrslit tölt T1 Ungmennaflokkur
19:35-20:05 A-úrslit tölt T1 Meistaraflokkur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link