Hestamannafélagið Sprettur Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts

  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Opið íþróttamót Sprett verður haldið dagana 20. - 24. maí á Samskipavelli Spretts. 

Opnað hefur verið fyrir skráningar á Sportfeng og skráning í barna- og unglingaflokki er 6.500 kr og í öðrum flokkum 8.000 kr. Hestamannafélagið Sprettur áskilur sér rétt að fella niður flokka þar sem ekki eru fleiri en sex skráningar. Skráningarfrestur er til 13. maí. Skráningar sem berast frá 14. maí til 17. maí munu kosta 15.000 kr í öllum flokkum.

Keppt verður í
T7: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur
T3: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
T4: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T2: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
V5: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og 2. flokkur
V2: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
V1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
F2: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
F1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
Gæðingaskeið: Ungmennaflokkur, 1.flokkur og meistaraflokkur
100 m skeið: Ungmennaflokkur og opin flokkur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link