Kynbótasýningar að hefjast í næstu viku
Fyrsta kynbótasýning ársins hérlendis hefst í næstu viku en sýnt verður dagana 18. til 20. maí. Eru 52 hross skráð og verður dæmt frá kl. 8:00 til 19:30 á mánudeginum og frá kl. 8:00 til kl. 16:30 á þriðjudeginum.
Sýnt verður frá öllum kynbótasýningum hérlendis í beinni á EiðfaxaTV
„Til að tímasetningar standist sem best biðjum við sýnendur og eigendur um að mæta tímanlega,“ segir í tilkynningu frá RML en mælingar hefjast kl. 7:50 og þá þurfa hross að vera mætt og tilbúin í mælingu, þannig að dómstörf geti hafist kl. 8:00. Sama á við um hollið eftir hádegið, dómar hefjast kl. 12:30 og þá þurfa hross að vera mætt í mælingu kl. 12:20 og fyrstu hross eftir kaffið þurfa að vera mætt 15:50.
„Vinsamlega mætið tímanlega kæru sýnendur því það kemur sér vel fyrir alla aðila. Ef hross detta út með skömmum fyrirvara er gott að sýningastjóri sé látinn vita, mögulega er þá hægt að færa til hross úr öðrum hollum svo ekki myndist eyður.“
Sýningunni lýkur með yfirlitssýningu miðvikudaginn 20. maí. Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins á Rangárbökkum hefur verið birt á síðu RML.
Síðasti skráningardagur á vorsýningar ársins er í dag föstudag 15. maí. Laus pláss eru á eftirtöldum sýningum:
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Góðir tímar á fyrstu skeiðleikum ársins