Hlaupagæslunámskeið LH og HÍDÍ
Miðvikudaginn 20. maí verður haldið námskeið fyrir þá aðila sem hafa hug á að sinna hlaupagæslu í kappreiðum á árinu 2026. Hídí og LH standa að námskeiðinu saman og það er haldið í fjarkennslu á Teams og hefst klukkan 20:00.
Samkvæmt reglum um kappreiðar þurfa hlaupagæslumenn í kappreiðaskeiði að vera viðurkenndir af Landssambandi hestamannafélaga og komast þar með á lista yfir viðurkennda hlaupagæslumenn.
Farið verður yfir hlutverk og ábyrgð hlaupagæslumanna, helstu reglur kappreiða, siðareglur og fleira ásamt því að skoða skeiðspretti. Dómarar með gild dómararéttindi Gdlh og kynbótadómarar eru samþykktir af LH sem hlaupagæslumenn og þurfa því ekki að taka námskeiðið til þess að vera á listanum.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa brennandi áhuga á kappreiðum og góða þekkingu á gangtegundum. Til þess að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á katla@lhhestar.is.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Hlaupagæslunámskeið LH og HÍDÍ
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Góðir tímar á fyrstu skeiðleikum ársins