Kynbótasýningar á Íslandi hefjast í dag
Djarfur frá Flatatungu í kynbótasýningu á Fjórðungsmóti árið 2021. Ljósmynd: Gísli Guðjónsson
Í dag hefjast kynbótasýningar á Íslandi þegar fyrstu hross ársins verða sýnd á Rangárbökkum við Hellu. Líkt og á öllum kynbótasýningu hér á landi verður sýnt frá reiðdómum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Alls eru þau 52 talsins hrossinn sem skráð eru í þessa sýningu og eru dómarar þau Þorvaldur Kristjánsson, Elisabet Trost og Sveinn Ragnarsson.
Líkt og segir á vef RML, er dæmt frá klukkan 8:00 til 19:30 í dag, mánudag, og frá klukkan 8:00 til klukkan 16:30 á þriðjudag. Á miðvikudag fer svo fram yfirlitssýning. Þá hvetur RML sýnendur og eigendur hrossa um að mæta tímanlega. Mælingar á morgnanna hefjast klukkan 7:50 og þá þurfa hross að vera mætt og tilbúin í mælingu, þannig að dómstörf geti hafist klukkan 8:00. Sama á við um hollið eftir hádegið, dómar hefjast kl. 12:30 og þá þurfa hross að vera mætt í mælingu kl. 12:20 og fyrstu hross eftir kaffið þurfa að vera mætt 15:50.
Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins á Rangárbökkum má nálgast hér.
Tryggðu þér áskrift í dag og fylgstu með í allt sumar!
HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV
Með ársáskrift tryggir þú þér allt efni
Með því að velja ársáskrift slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt miðað við mánaðaráskrift og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
Kynbótasýningar á Íslandi hefjast í dag
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið