Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
Seytla frá Íbishóli, knapi Jón Ársæll Bergmann Mynd: Nicki Pfau
Kynbótasýningar hófust formlega í gær á Rangárbökkum við Hellu þar sem fyrsta sýning ársins á Íslandi fer fram nú næstu daga. Forsýningar voru í gær og í dag og yfirlit á morgun, miðvikudag. Hægt er að fylgjast með reiðdómum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Alls voru sýnd 23 hross í fullnaðardómi í gær. Efsta hross sýningarinnar er Seytla frá Íbishóli en hún hlaut frábæran dóm. 9,5 fyrir samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið, fegurð í reið, hægt tölt og bak og lend. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,31 og fyrir hæfileika 8,77 sem gerir 8,61 í aðaleinkunn. Það var Jón Ársæll Bergmann sem sýndi hana.
Það muna kannski einhverjir eftir Seytlu en hún var í A úrslitum í fimmgangi í Meistaradeild Líflands í vetur. Seytla er sjö vetra gömul undan Seylu frá Efra-Langholti og Óskasteini frá Íbishóli. Ræktandi hennar er Íbishóll ehf. en eigendur Jón Ársæll Bergmann og Ágúst Rúnarsson. Seytla varð með þessum dómi hæst dæmda afkvæmi Óskasteins.

Kylja frá Margrétarhofi hlaut 8,61 fyrir sköpulag
Kylja sló í gegn í fyrsta holli ársins á kynbótasýningum
Í fyrsta holli dagsins voru níu hross sýnd í reið en þar vakti mesta athygli hryssan Kylja frá Margrétarhofi sem hlaut frábæran dóm. 9,5 fyrir háls, herðar og bóga, tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur. Hlaut hún 8,61 fyrir sköpulag, 8,56 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,58. Hæfileika einkunn hennar án skeiðs er afar glæsileg og hljóðar upp á 9,21.
Kylja er sex vetra gömul undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Álfamey frá Dufþaksholti. Ræktandi hennar er Margrétarhof hf en eigandi er Anja Egger-Meier. Varð Kylja með þessu hæst dæmda dóttir Kveiks sem mætt hefur til kynbótadóms.
Tryggðu þér áskrift í dag og fylgstu með í allt sumar á EiðfaxaTV.
HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV
Með ársáskrift tryggir þú þér allt efni
Með því að velja ársáskrift slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt miðað við mánaðaráskrift og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
150 plássum bætt við
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
„Spáin er góð, brautin er frábær og við klár fyrir met“
„Höfum þróast með því sem er að gerast í heiminum“
Glæsilegu WR Íþróttamóti Sleipnis lokið