Svíþjóð Mjölnir og Ófelía hæst dæmd á Margretarhof

  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Mjölnir fra Lindholm Høje. Ljósmynd: Avelsbedömningar i Sverige

Átta hross hlutu 1.verðlaun

Kynbótasýningu á Margretarhof í Svíþjóð lauk í dag með yfirlitssýningu. Dómarar voru þeir Eyþór Einarsson, Heimir Gunnarsson og Tom Buitjelaar alls voru það 34 hross sem sýnd voru í fullnaðardóm og 4 eingöngu í byggingu. Alls hlutu átta hross einkunn yfir 8,00 og 1.verðlaun.

Sýningin var sýnd í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er nú aðgengileg áskrifendum okkar inn á streymisveitunni.

Árangursrík ræktun á Lindholm

Hæst dæmda hross sýningarinnar var sex vetra gamall stóðhestur, Mjölnir fra Lindholm Høje. Mjölnir er undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Mekkín frá Feti ræktaður af þeim Flemming Fast og Gitte Fast Lambertsen á Lindholm Høje í Danmörku. Sýnandi Mjölnirs var Hlynur Pálsson. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,29, fyrir hæfileika 8,43 og í aðaleinkunn 8,38. Hæst hlaut hann 9,0 fyir samstarfsvilja og fegurð í reið.

Þessi sýning var árangursrík fyrir þau Flemming og Gitte því hæst dæmda hryssan á sýningunni var einnig úr þeirra ræktun. Heitur sú Ófelía fra Lindholm Høje og er undan Skýr frá Skálakoti og Orku frá Kvíarhóli, sýnandi á henni var Karen Konráðsdóttir. Ófelía hlaut 8,43 fyrir sköpulag, 8,34 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,37. Þar á meðal er einkunnin 9,0 fyrir fegurð í reið og hægt tölt.

Ófelía Ljósmynd: Avelsbedömningar i Sverige

 

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
DK2020100488 Mjölnir fra Lindholm Høje 8.29 8.43 8.38 Hlynur Pálsson
DK2020200565 Ófelía fra Lindholm Høje 8.43 8.34 8.37 Karen Konráðsdóttir
IS2019255119 Dagný frá Lækjamóti II 8.37 8.22 8.28 Caspar Logan Hegardt
DK2017100141 Atlas fra Teland 8.36 8.03 8.15 Steffi Svendsen
IS2016281909 Lind frá Rauðalæk 8.26 8.08 8.15 Caspar Logan Hegardt
DK2020200198 Talenta fra Teland 8.27 8.05 8.13 Steffi Svendsen
DK2022100839 Ópus fra Starbakken 8.07 8.12 8.11 Caspar Logan Hegardt
DK2021100634 Teitur fra Lindholm Høje 8.4 7.87 8.06 Hlynur Pálsson
SE2019222011 Una från Vinkärgård 7.94 7.99 7.97 Caspar Logan Hegardt
DK2019200594 Næla fra Teland 8.01 7.92 7.95 Steffi Svendsen
DK2022100768 Meistari fra Lindholm Høje 8.14 7.84 7.95 Hlynur Pálsson
SE2021122034 Alvar från Vinkärgård 8.2 7.75 7.91 Caspar Logan Hegardt
DK2020200480 Sólný fra Teland 7.98 7.8 7.86 Steffi Svendsen
SE2019222045 Meyja från Smedjan 8.13 7.69 7.85 Caspar Logan Hegardt
IS2015282851 Pandóra frá Fornustöðum 8.16 7.68 7.85 Caspar Logan Hegardt
IS2018201317 Gleymmérei frá Öld 8.26 7.57 7.81 Agnar Snorri Stefánsson
IS2015135716 Mímir frá Oddsstöðum I 8.4 7.49 7.81 Agnar Snorri Stefansson
CH2020203047 Aþena vom Ibikonhof 8.06 7.66 7.8 Steffi Svendsen
SE2022222001 Lynja från Änghaga 8.09 7.63 7.79 Sebastian Benje
SE2019222005 Edda från Örbyhof 8.09 7.51 7.71 Sebastian Benje
IS2015265893 Kveðja frá Kommu 7.78 7.58 7.65 Samanta Hellman
IS2018101949 Fáfnir frá Keisaraengi 8.09 7.36 7.62 Sebastian Benje
SE2019122016 Safír från Änghaga 8.45 7.15 7.61 Sebastian Benje
SE2021224023 Eilíf från Ekeberg Gård 7.99 7.32 7.55 Ólafur Ásgeirsson
SE2021222017 Smáhildur från Fögruhlíð 7.94 7.32 7.54 Sofia Österholm
IS2021157814 Kristófer frá Varmalæk 8.13 7.21 7.53 Sebastian Benje
SE2021223003 Tíbrá från Sundabakka 7.69 7.32 7.45 Elin Tornerefelt
SE2021122025 Hlekkur från Helgagården 8.38 6.93 7.44 Sebastian Benje
IS2019101007 Fróði frá Flagveltu 7.94 7.07 7.37 Sebastian Benje
SE2018222037 Iðja från Ringhult 7.67 7.2 7.37 Möllerberg, Maria
SE2020222023 Harpa från Helgagården 8.12 6.87 7.31 Karin Gunnarsson
SE2022222000 Tara från Änghaga 7.91 6.92 7.27 Sebastian Benje
SE2021222042 Surtsey från Ringhult 7.71 6.92 7.2 Möllerberg Sofia
SE2020222024 Orka från Ringhult 7.59 6.8 7.08 Möllerberg, Maria
IS2017157382 Aðall frá Lyngási 8.05 Ólafur Ásgeirsson
DK2023100120 Flugfari fra Munkhøj 7.55 Pernille T. Christensen
SE2022122018 Galsi från Wilhelmsholt 7.96 Wilhelmsson, Mia
SE2019122010 Síríus från Skáneyland 7.99 Wilhelmsson, Mia

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link