Landbúnaðarháskóli Íslands Nýtt diplómanám í tamningafræði við LbhÍ

  • 1. júní 2026
  • Fréttir

Linda Rún segir nemenda til í náttúrunni við Mið-Fossa. Ljósmyndir með greininni: James Einar Becker/Lbhí

Svara ákalli eftir hnitmiðuðu námi á háskólastigi

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) mun næsta haust bjóða upp á nýja og afar hagnýta námsleið; 60 ECTS eininga diplómanám í tamningum hrossa. Um er að ræða eins árs fullt nám á háskólastigi þar sem rík áhersla er lögð á atferli og velferð hrossa, faglega færni og þjálfun í fjölbreyttu umhverfi úti í náttúrunni. Linda Rún Pétursdóttir, yfirreiðkennari við brautina, segir námið svara mikilli eftirspurn í hesta-samfélaginu. En auk Lindu kemur hópur fagfólks að kennslu.

Að sögn Lindu Rúnar var kveikjan að stofnun þessarar nýju námslínu sú að skólinn fann fyrir skýru ákalli eftir stuttu, hnitmiðuðu og hagnýtu námi í tamningum. Í dag virðist fólk í minna mæli tilbúið til að skuldbinda sig í langt háskólanám eins og þriggja ára BS-nám strax í upphafi, en mikil vöntun er á menntuðu fólki í greininni. Aukin þekking og fagleg færni skilar sér ótvírætt í betri árangri og bættri velferð hrossa. Námið er opið öllum þeim sem hafa góðan grunn í reiðmennsku og vilja starfa við tamningar, temja eigin trippi eða reka tamningastöð í framtíðinni.

Verklegt inntökupróf á Miðfossum í júní

Umsóknarfrestur í námið rennur út þann 5. júní næstkomandi og í kjölfarið tekur við ferli til að velja nemendur inn, en að lágmarki þarf 12 nemendur til að námið geti hafist.
Linda Rún útskýrir að allir umsækjendur muni mæta á Miðfossa í verklegt inntökupróf þar sem þeim verða úthlutuð reiðhross á staðnum. „Nemendur leggja við hrossin, fara svo inn í höll og ríða nokkrar grunn-gangtegundir. Það sem horft er í þar er að sjá hvort nemandinn hafi góðan grunn í reiðmennsku og sé tilbúinn til að hefja nám við frumtamningar á ungum trippum,“ segir Linda. Að loknu verklega prófinu mæta umsækjendur í stutt viðtal við prófdómara þar sem farið er yfir námsfyrirkomulagið, reynslu nemandans og væntingar.

Sveigjanleiki og verknám með úthlutuðum trippum

Námið er hannað sem 60 eininga örnám á grunnstigi á háskólastigi, en því fylgir mikill sveigjanleiki sem hentar vinnandi fólki. Nemendur geta valið að „stafla önnum“ og taka eina stuttönn í einu þar til diplómuheiti er náð, eða einbeitt sér eingöngu að þeim áföngum sem sérkenna diplómanámið, svo sem fortamningum, frumtamningum, þjálfun unghrossa og verknámi. Þá getur námið einnig nýst sem hluti af fullu BS-námi í hestafræði síðar meir.

Verknámsþátturinn sjálfur telur alls 13 einingar og er ætlað að dýpka færni nemenda og þjálfun í frumtamningum á grundvelli þess sem kennt er á fyrstu önninni. Nemendur fá úthlutað þremur trippum frá Landbúnaðarháskólanum til að vinna með og temja undir leiðsögn verknámskennara, en þeim býðst einnig sá möguleiki að koma með eitt trippi frá sjálfum sér í námið.

Öflugur hópur fagfólks

Námið fer fram í húsakynnum Lbhí og í hestamiðstöðinni á Mið-Fossum. Þar er glæsileg aðstaða til kennslu með stórri og rúmgóðri reiðhöll, stóru hesthúsi, keppnisvelli og reiðleiðum til allra átta.
Þá hefur LbhÍ hefur tryggt sér hóp afar öflugra og reynslumikilla fagmanna til að stýra kennslunni og tryggja gæði námsins:

• Magnús Lárusson, MS í tamningafræðum og B-reiðkennari, mun kenna atferlisfræði og upphaf tamninga út frá forsendum trippanna.
• Randi Holaker og Haukur Bjarnason, reiðkennarar, munu koma ríkulega að verklega náminu og kennslunni.
• Benedikt Líndal, tamningameistari, mun starfa sem ráðgjafi við námsbrautina.
• Sigríður Björnsdóttir, Dýralæknir og prófessor við Lbhí kemur m.a. að kennslu um velferð hrossa

Auk tamningafaganna er námskráin mjög fjölbreytt og hagnýt, en þar má finna áfanga á borð við Líffræði hestsins, Heilsufræði hesta, Járningar og hófhirðu, Atferli og velferð búfjár, Almenna bútækni og Fjárhagsbókhald – sem nýtist sérstaklega vel þeim sem ætla sér í sjálfstæðan rekstur í hestamennsku.

Eins og áður segir er loka umsóknarfrestur þann 5. júní og hvetur skólinn alla áhugasama sem búa yfir viðeigandi reynslu og grunnfærni til að kynna sér málið og senda inn umsókn.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link