Líklegir stóðhestar til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á Landsmóti
Pensill frá Hvolsvelli hefur þegar náð tilskyldum fjölda afkvæma til 1.verðlauna fyrir afkvæmi og stendur vel í kynbótamatinu
Á komandi Landsmóti á Hólum í Hjaltadal geta þeir stóðhestar sem ná lágmörkum til afkvæmaverðlauna komið fram með afkvæmahópa sína. Er þetta mikill heiður fyrir ræktendur og eigendur þessara hesta og eins mikilvægar upplýsingar til handa ræktendum landsins að sjá samhljóminn í afkvæmahópum hestanna.
Nú þegar kynbótasýningar eru hafnar á Íslandi er gaman að velta því fyrir sér hvaða stóðhestar gætu komið fram með afkvæmahópa á þessu móti. Miðast fjöldi sýndra afkvæma við það þegar greinin er skrifuð og birt (3.júní). Endanleg röðun hestanna og hvort þeir uppfylli öll skilyrði mun svo liggja fyrir þegar nýtt kynbótamat verður reiknað að loknum öllum kynbótasýningum í vor.
Við byrjum á að skoða þá stóðhesta sem hafa nú þegar eða gætu náð lágmörkum til 1.verðlauna fyrir afkvæmi. Til að stóðhestur hljóti 1.verðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og að minnsta kosti 15 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Miðað er við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Eiga mislangt í land með afkvæmafjölda
Fjórir stóðhestar hlutu viðurkenningu fyrir 1.verðlaun fyrir afkvæmi árið 2025 og bíðst þeim að koma fram með afkvæmahópa á Landsmóti, standi þeir ennþá með 118 stig í kynbótamatinu að loknum útreikningum.. Það eru þeir Vökull frá Efri-Brú, Útherji frá Blestastöðum 1A, Dofri frá Sauðárkróki og Vákur frá Vatnsenda. Þá er ljóst að Pensill frá Hvolsvelli hefur uppfyllt skilyrði til 1.verðlaun en hann á nú þegar þetta er ritað 17 afkvæmi sýnd í fullnaðardómi og stendur vel að vígi í kynbótamatinu.
Stóðhestarnir eiga mislangt í land með það að uppfylla skilyrði til 1.verðlaun og munar þar mest um fjölda sýndra afkvæma en flestir standa þeir ágætlega að vígi í kynbótamatinu.
Listi yfir stóðhesta raðað eftur aðaleinkunn kynbótamatsins
| Nafn | Fj. sýndra afkvæma | Kynbótamat | Kynbótamat án skeiðs |
| Skarpur frá Kýrholti | 10 | 135 | 144 |
| Pensill frá Hvolsvelli | 17 | 132 | 132 |
| Hannibal frá Þúfum | 6 | 132 | 139 |
| Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 7 | 130 | 125 |
| Veigar frá Skipaskaga | 8 | 127 | 129 |
| Ljúfur frá Torfunesi | 10 | 125 | 129 |
| Kjuði frá Dýrfinnustöðum | 7 | 123 | 118 |
| Útherji frá Blesastöðum 1A* | 22 | 121 | 126 |
| Þór frá Torfunesi | 11 | 120 | 116 |
| Safír frá Mosfellsbæ | 7 | 120 | 126 |
| Rauðskeggur frá Kjarnholtum | 10 | 119 | 113 |
| Vökull frá Efri-Brú* | 15 | 119 | 126 |
| Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 14 | 117 | 120 |
| Dofri frá Sauðárkróki* | 19 | 116 | 123 |
| Frami frá Ketilsstöðum | 11 | 115 | 121 |
| Eldur frá Bjarghúsum | 10 | 114 | 119 |
| Vákur frá Vatnsenda* | 17 | 109 | 118 |
* Hlutu 1.verðlaun fyrir afkvæmi árið 2025
Tekið skal fram að stóðhestar í öðrum löndum sem eru að nálgast eða hafa náð lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi eru ekki með á listanum. Listinn miðast við þá hesta sem gætu komið fram með afkvæmahóp á næsta Landsmóti. Þá er hann einnig birtur með fyrirvara um það að greinarhöfundi hafi yfirsést stóðhestar. Allar ábendingar vel þegnar á eidfaxi@eidfaxi.is
Landsmót verður í beinni útsendingu á EiðfaxaTV þar sem sýnt verður frá öllu því sem þar fer fram. Takið eftir að mótið verður eingöngu aðgengilegt þeim sem eru í ársáskrift. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum.
Ert þú í ársáskrift ? Ef ekki geturðu alltaf breytt úr mánaðarlegum greðislum í ársáskrift. Hafðu samband á eidfaxi@eidfaxi.is og við græjum málið.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta