Hestamannafélagið Fákur Ásmundur og Hlökk í ofurtölur

  • 6. júní 2026
  • Fréttir

Stjörnuparið Ásmundur og Hlökk eru að eiga stórgott Reykjavíkurmeistaramót Mynd: Gunnhildur Ýrr, Draumfaramyndataka

Reykjavíkurmeistaramót Fáks er í fullum gangi.

Í gærkvöldi lauk síðustu forkeppni mótsins en það var tölt T1 í meistaraflokki. Þar áttu þau Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði stórsýningu og hlutu m.a. 10 frá tveimur dómurum fyrir greitt tölt. Heildareinkunn var 9,27 sem er einhver alhæsta einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í tölti.

Eftir því sem blaðamaður Eiðfaxa kemst næst er það hæsta einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í tölti T1.  Áður höfðu þeir Árni Björn Pálsson og Ljúfur frá Torfunesi farið í 9,20 í forkeppni í tölti T1 en það var einmitt á Reykjavíkurmeistaramóti árið 2021. Jöfnuð þeir þar einkunn Jóhanns R. Skúlasonar og Hnokka frá Fellskoti sem hlutu 9,20 í forkeppni í tölti T1 á Heimsmeistaramótinu í Berlín árið 2013.

Þau Ásmundur og Hlökk standa einnig efst í fjórgangi V1 með 7,87 í einkunn.

Hægt er að fylgjast með Reykjavíkurmeistaramótinu í beinni á EiðfaxaTV en einnig er hægt að horfa á mótið eftir á.

Tölt T1 – Meistaraflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 9,27
2-3 Viðar Ingólfsson Sókrates frá Skáney 7,93
2-3 Hinrik Bragason Hugur frá Hólabaki 7,93
4 Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka 7,87
5 Jóhanna Margrét Snorradóttir Orri frá Sámsstöðum 7,83
6 Sara Sigurbjörnsdóttir Dísa frá Syðra-Holti 7,60
7 Ævar Örn Guðjónsson Lilja frá Eystri-Hól 7,57
8 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 7,50
9 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,43
10 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,40
11 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hringhenda frá Geirlandi 7,37
12 Herdís Lilja Björnsdóttir Garpur frá Seljabrekku 7,33
13 Hekla Katharína Kristinsdóttir Lilja frá Kvistum 7,30
14-15 Kristín Lárusdóttir Stígur frá Hörgslandi II 7,27
14-15 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 7,27
16 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Þór frá Hekluflötum 7,13
17 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Jökull frá Þingbrekku 7,10
18-20 Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum 7,07
18-20 Kristín Lárusdóttir Perla frá Laugardælum 7,07
18-20 Selina Bauer Amíra frá Hólum 7,07
21 Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir Hrafn frá Vatni 7,00
22 Lýdía Þorgeirsdóttir Segull frá Litlu-Sandvík 6,93
23-24 Bjarki Fannar Stefánsson Vaka frá Sauðárkróki 6,80
23-24 Anna Björk Ólafsdóttir Spenna frá Bæ 6,80
25 Anna S. Valdemarsdóttir Byrjun frá Halakoti 6,77
26 Katla Sif Snorradóttir Gleði frá Efri-Brúnavöllum I 6,73
27 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 6,70
28 Katrín Ösp Bergsdóttir Eldur frá Lundi 6,67
29 Kristófer Darri Sigurðsson Konsert frá Frostastöðum II 6,50
30 Þorvaldur Logi Einarsson Vígur frá Einiholti 6,43
31 Bjarni Sveinsson Tumi frá Hurðarbaki 5,73

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link