Líklegir heiðursverðlauna stóðhestar á Landsmóti
Þráinn frá Flagbjarnarholti er líklegur Sleipnisbikarshafi á Landsmóti í sumar
Á komandi Landsmóti á Hólum í Hjaltadal geta þeir stóðhestar sem ná lágmörkum til afkvæmaverðlauna komið fram með afkvæmahópa sína. Er þetta mikill heiður fyrir ræktendur og eigendur þessara hesta og eins mikilvægar upplýsingar til handa ræktendum landsins að sjá samhljóminn í afkvæmahópum hestanna.
Nú þegar kynbótasýningar eru hafnar á Íslandi er gaman að velta því fyrir sér hvaða stóðhestar gætu komið fram með afkvæmahópa á þessu móti. Miðast fjöldi sýndra afkvæma við það þegar greinin er skrifuð og birt (7.júní). Endanleg röðun hestanna og hvort þeir uppfylli öll skilyrði mun svo liggja fyrir þegar nýtt kynbótamat verður reiknað að loknum öllum kynbótasýningum í vor.
Til að stóðhestur hljóti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Verða þeir bara tveir?
Hér fyrir neðan má sjá þá stóðhesta sem líklegastir eru til þess að ná heiðursverðlaunum á þessu ári. Þeir eiga þó mismikið í land með að ná tilteknum fjölda afkvæma. Tveir stóðhestar hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á síðasta ári og gætu þeir nú báðir komið með afkvæmahópa á Landsmót. Þetta eru þeir Þráinn frá Flagbjarnarholti og Hreyfill frá Vorsabæ. Þeim til viðbótar eru upptaldir fjórir stóðhestar sem einhverjar líkur eru á að nái til heiðursverðlauna en flestum vantar þeim á annan tug afkvæma til dóms eða þá að þeir standa ekki traustum fótum í kynbótamatinu og mega ekki við að missa stig.
| Nafn | Fj. sýndra afkvæma | Kynbótamat | Kynbótamat án skeiðs |
| Adrían frá Garðhorni á Þelamörk | 30 | 132 | 128 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti* | 69 | 132 | 126 |
| Forkur frá Breiðabólsstað | 33 | 121 | 118 |
| Hreyfill frá Vorsabæ* | 54 | 119 | 128 |
| Hákon frá Ragnheiðarstöðum | 38 | 117 | 118 |
| Lord frá Vatnsleysu | 30 | 116 | 121 |
* Hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2025
Tekið skal fram að stóðhestar í öðrum löndum sem eru að nálgast eða hafa náð lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi eru ekki með á listanum. Listinn miðast við þá hesta sem gætu komið fram með afkvæmahóp á næsta Landsmóti. Þá er hann einnig birtur með fyrirvara um það að greinarhöfundi hafi yfirsést stóðhestar. Allar ábendingar vel þegnar á eidfaxi@eidfaxi.is
Landsmót verður í beinni útsendingu á EiðfaxaTV þar sem sýnt verður frá öllu því sem þar fer fram. Takið eftir að mótið verður eingöngu aðgengilegt þeim sem eru í ársáskrift. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum.
Ert þú í ársáskrift ? Ef ekki geturðu alltaf breytt úr mánaðarlegum greðislum í ársáskrift. Hafðu samband á eidfaxi@eidfaxi.is.
Tinni slær heimsmet
Ásmundur og Hlökk í ofurtölur