Skráningu lýkur á föstudag á Íslandsmót
Þeir renna þeir 250 m skeiðið saman Árni Björn Pálsson á Þokka frá Varmalandi og Sigursteinn Sumarliðason á Liðsauka frá Áskoti. Árni Börn og Þokki fóru á 22,10 sek en Sigursteinn og Liðsauki á 23,37 sek. Mynd: Heiðrún Anna Ásmundsdóttir
Opið er fyrir skráningu á mótið fram til miðnættis föstudaginn 12. júní.
Hestamannafélagið Sörli leggur metnað í að mótið fari vel fram og félagsmenn munu kappkosta að taka vel á móti keppendum og áhorfendum. Sjónvarpað verður frá mótinu á Eiðfaxa TV.
Skráningargjald fyrir hverja grein er 15.000. Innifalið í skránargjaldi eru:
- Hesthúspláss í boði félagsmanna
- Hey í boði Einars í Vogatungu
- Undirburður í boði Furuflísar
- Miði á lokahóf mótsins þann 20.06
Knapar sem óska eftir hesthúsplássi skulu senda tölvupóst á motanefnd@sorli.is.
Þátttökurétt eiga þau pör sem hafa náð lágmörkum í hringvalla greinum á þessu ári. Lágmörk gilda einnig í skeiðgreinum, 100m, 150m, 250m og gæðingaskeiði.
Skráningu lýkur á föstudag á Íslandsmót
Tinni slær heimsmet