Gæðingsefni, söngur og gleði

  • 24. september 2011
  • Fréttir
Gæðingsefni, söngur og gleði

Mikill mannfjöldi var í Laufskálarétt í dag er Skagfirðingar náðu hrossum sínum af fjalli og menn flokkuðu sín hross úr stóðinu. Stemningin var góð og vaxandi eftir því sem á daginn leið…

Mikið af gestum úr öðrum landshlutum lögðu leið sína í Hjaltadalinn til að vera viðstaddir þessa hæatíð sem margir Skagfirðingar kalla „Þjóðhátíð Skagfirðinga“. Einnig mátti sjá töluvert af erlendum gestum.

Það var tignarleg sjón að sjá stóðið renna af fjallinu og svo hófst fjörið í réttinni. Undirrituðum finnst sumir vera harðir við ungviðið er verið er að flokka hrossin og þegar 4 fullfrískir kallar eru að hanga á einum trippis-ræfli, vaknar spurningin; „hve marga kalla þarf til að skipta um peru“
Annars voru hrossin falleg og í flottu standi þrátt fyrir kalt og sprettulítið sumar norðanlands.

Hér eru nokkrar myndir af atburðum dagsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link