Þrjár yfir 9,00 fyrir hæfileika
Blíða frá Bergi, sýnandi Þorgeir Ólafsson Mynd: Þórhildur Gunnarsdóttir
Þær voru gullgóðar hryssurnar sem mættu í braut í dag í flokki fjögurra vetra hryssna. Ellefu hryssur voru sýndar, þrjár hlutu yfir 9,00 fyrir hæfileika og fimm tíur voru gefnar fyrir einstaka eiginleika.
Blíða frá Bergi stendur efst með 8.92 í aðaleinkunn. Hafði hún hlotið 8.69 fyrir sköpulag og hlaut fyrir hæfileika 9.05. Hlaut hún m.a. 9.5 fyrir tölt og samstarfsvilja og 9.0 fyrir brokk, hægt tölt, fegurð í reið og fet. Hún er 7 vetra undan Ský frá Skálakoti og Rót frá Bergi. Eigendur og ræktendur eru Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson en það var Þorgeir Ólafsson sem sýndi hryssuna.
Tíu fyrir tölt, hægt tölt og samstarfsvilja
Sparta frá Eystra-Fróðholti er önnur með hvorki meira né minna en 9.31 fyrir hæfileika sem er þriðja hæsta hæfileika einkunn sem hrossi hefur verið gefin. Hlaut hún fyrir sköpulag 8.16 og í aðaleinkunn 8.91. Hún hlaut þrjár 10 – fyrir tölt, hægt tölt og samstarfsvilja. Hlaut hún 9.5 fyrir brokk, greitt stökk og fegurð í reið og 9.0 fyrir skeið. Sparta er 7 vetra undan Rauðskegg frá Kjarnholtum I og Spá frá Eystra-Fróðholti. Ræktendur eru Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir og Ársæll Jónsson sem er jafnframt eigandi ásamt Önnu Fíu Finnsdóttur. Sýnandi var Jón Ársæll Bergmann.
Þriðja í röðinni er Hetja frá Ragnheiðarstöðum en hún er með 8.85 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut hún 8.99 og fyrir hæfileika 8.78. Hlaut hún m.a. 9.0 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Hetja er sjö vetra undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Hendingu frá Úlfsstöðum. Ræktandi er Helgi Jón Harðarson en eigendur eru Birgir Már Ragnarsson og HJH Eignarhaldsfélag ehf. Sýnandi var Teitur Árnason.
Tíu fyrir samstarfsvilja og hægt tölt
Seytla frá Íbishóli hlaut 10 fyrir samstarfsvilja og hægt tölt. Auk þess hlaut hún 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið. Seytla er sjö vetra undan Óskasteini frá Íbishóli og Seylu frá Efra-Langholti. Hún var ræktuð af Íbishól ehf. og er í eigu Ágústs Rúnarssonar og Jón Ársæls Bergmanns sem sýndi einnig hryssuna. Hún hafði hlotið 8.31 fyrir sköpulag og hlaut fyrir hæfileika 9.07 sem gerir 8.81 í aðaleinkunn.
| Hryssur 7 vetra og eldri | |
| IS2019237484 Blíða frá Bergi Örmerki: 352206000133062 Litur: 22000 Móbrúnn Ræktandi: Anna Dóra Markúsdóttir, Jón Bjarni Þorvarðarson Eigandi: Anna Dóra Markúsdóttir, Jón Bjarni Þorvarðarson F.: IS2007184162 Skýr frá Skálakoti Ff.: IS2000135815 Sólon frá Skáney Fm.: IS2001284163 Vök frá Skálakoti M.: IS2009237336 Rót frá Bergi Mf.: IS2003156956 Kvistur frá Skagaströnd Mm.: IS1994237335 Hrísla frá Naustum Mál (cm): 147 – 134 – 137 – 66 – 143 – 40 – 48 – 46 – 6,3 – 27,5 – 17,0 Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 9,0 = 8,69 Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 9,0 = 9,05 Hægt tölt: 9,0 Aðaleinkunn: 8,92 |
IS2019286184 Sparta frá Eystra-Fróðholti Örmerki: 352098100092985 Litur: 35000 Jarpur Ræktandi: Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir, Ársæll Jónsson Eigandi: Anna Fía Finnsdóttir, Ársæll Jónsson F.: IS2011188560 Rauðskeggur frá Kjarnholtum I Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi Fm.: IS1995288566 Hera frá Kjarnholtum I M.: IS2006286178 Spá frá Eystra-Fróðholti Mf.: IS1997186183 Sær frá Bakkakoti Mm.: IS1995286176 Gletta frá Bakkakoti Mál (cm): 146 – 133 – 139 – 65 – 144 – 39 – 48 – 44 – 6,6 – 28,0 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 8,5 Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,16 Hæfileikar: 10,0 – 9,5 – 9,0 – 9,5 – 8,5 – 10,0 – 9,5 – 7,0 = 9,31 Hægt tölt: 10,0 Aðaleinkunn: 8,91 |
| IS2019282573 Hetja frá Ragnheiðarstöðum Örmerki: 352098100066286 Litur: 25000 Brúnn Ræktandi: Helgi Jón Harðarson Eigandi: Birgir Már Ragnarsson, HJH Eignarhaldsfélag ehf F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum M.: IS1997258874 Hending frá Úlfsstöðum Mf.: IS1991138001 Jarl frá Búðardal Mm.: IS1990258875 Harka frá Úlfsstöðum Mál (cm): 147 – 136 – 140 – 64 – 140 – 36 – 48 – 44 – 6,5 – 28,0 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 9,1 – V.a.: 8,2 Sköpulag: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 9,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 = 8,99 Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,78 Hægt tölt: 8,5 Aðaleinkunn: 8,85 |
IS2019284981 Vala frá Vindási Örmerki: 352098100085572 Litur: 15010 Rauður glófextur Ræktandi: Auður Stefánsdóttir Eigandi: Auður Stefánsdóttir, Vindáshestar ehf F.: IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Ff.: IS1997158469 Hágangur frá Narfastöðum Fm.: IS1994238714 Elding frá Lambanesi M.: IS2006284987 Gjöf frá Vindási Mf.: IS1999188801 Þóroddur frá Þóroddsstöðum Mm.: IS1997284980 Valka frá Vindási Mál (cm): 147 – 134 – 143 – 65 – 145 – 37 – 50 – 45 – 6,5 – 29,0 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,4 Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,80 Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,85 Hægt tölt: 8,5 Aðaleinkunn: 8,83 |
| IS2019257687 Seytla frá Íbishóli Örmerki: 352205000009289 Litur: 35000 Jarpur Ræktandi: Íbishóll ehf Eigandi: Ágúst Rúnarsson, Jón Ársæll Bergmann F.: IS2005157994 Óskasteinn frá Íbishóli Ff.: IS1994166620 Huginn frá Haga I Fm.: IS1998257686 Ósk frá Íbishóli M.: IS1999288296 Seyla frá Efra-Langholti Mf.: IS1993188865 Miski frá Miðdal Mm.: IS1986288296 Stelpa frá Efra-Langholti Mál (cm): 144 – 133 – 137 – 65 – 142 – 37 – 48 – 43 – 6,5 – 28,0 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 7,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 7,0 = 8,31 Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 10,0 – 9,5 – 7,0 = 9,07 Hægt tölt: 10,0 Aðaleinkunn: 8,81 |
IS2019281514 Nóta frá Sumarliðabæ 2 Örmerki: 352098100088743 Litur: 86200 Grár, f. bleikálóttur stjörnóttur Ræktandi: Birgir Már Ragnarsson, Silja Hrund Júlíusdóttir Eigandi: Svarthöfði-Hrossarækt ehf. F.: IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti Ff.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi Fm.: IS1999225029 Stelpa frá Meðalfelli M.: IS2011235262 Flauta frá Einhamri 2 Mf.: IS1998187002 Stáli frá Kjarri Mm.: IS1997237500 Gusta frá Litla-Kambi Mál (cm): 142 – 133 – 137 – 61 – 142 – 39 – 48 – 43 – 6,2 – 27,5 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,5 – 7,0 – 8,5 – 7,0 = 8,49 Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 9,0 – 7,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 = 8,86 Hægt tölt: 9,0 Aðaleinkunn: 8,73 |
| IS2019201856 Ramóna frá Heljardal Örmerki: 352098100086114 Litur: 21200 Brúnn, ber leirlit, öll litbrigði, með/án glóþáttarins stjörnóttur Ræktandi: Anton Páll Níelsson, Inga María S. Jónínudóttir Eigandi: Nökkvi Þeyr Þórisson, Teitur Árnason, Þorri Mar Þórisson F.: IS2011187105 Draupnir frá Stuðlum Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi Fm.: IS1996287667 Þerna frá Arnarhóli M.: IS2001258596 Auður frá Hofi Mf.: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum Mm.: IS1990237878 Perla frá Hömluholti Mál (cm): 147 – 135 – 139 – 66 – 143 – 37 – 51 – 45 – 6,7 – 28,5 – 18,5 Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,2 Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 8,5 – 9,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 6,5 = 8,57 Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 = 8,72 Hægt tölt: 8,0 Aðaleinkunn: 8,67 |
IS2019281495 Þórdís frá Flagbjarnarholti Örmerki: 352098100092117 Litur: 15500 Rauður blesóttur Ræktandi: Jaap Groven Eigandi: Jaap Groven F.: IS2010182570 Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi Fm.: IS1997258874 Hending frá Úlfsstöðum M.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum Mf.: IS1988176100 Svartur frá Unalæk Mm.: IS1985287020 Krás frá Laugarvatni Mál (cm): 145 – 136 – 140 – 65 – 143 – 36 – 50 – 43 – 6,3 – 29,0 – 18,5 Hófa mál: V.fr.: 9,1 – V.a.: 9,0 Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 = 9,04 Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,47 Hægt tölt: 8,0 Aðaleinkunn: 8,67 |
| IS2018288560 Kempa frá Kjarnholtum I Örmerki: 352098100079474 Litur: 25000 Brúnn Ræktandi: Magnús Einarsson Eigandi: Brynja Kristinsdóttir, Eysteinn Leifsson ehf, Flosi Ólafsson F.: IS2011135727 Forkur frá Breiðabólsstað Ff.: IS2005187804 Fláki frá Blesastöðum 1A Fm.: IS1994235790 Orka frá Tungufelli M.: IS1995288566 Hera frá Kjarnholtum I Mf.: IS1989188560 Kolskeggur frá Kjarnholtum I Mm.: IS1988288570 Lyfting frá Kjarnholtum I Mál (cm): 148 – 137 – 143 – 64 – 142 – 36 – 49 – 44 – 6,6 – 29,0 – 18,5 Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,7 Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 9,0 – 7,0 = 8,50 Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,5 = 8,68 Hægt tölt: 9,0 Aðaleinkunn: 8,62 |
IS2019284366 Ímynd frá Skíðbakka I Örmerki: 352098100093003 Litur: 15010 Rauður glófextur Ræktandi: Rútur Pálsson Eigandi: Árni Sigfús Birgisson, Rútur Pálsson F.: IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Ff.: IS1997158469 Hágangur frá Narfastöðum Fm.: IS1994238714 Elding frá Lambanesi M.: IS1999284368 Ísold frá Skíðbakka I Mf.: IS1991188120 Sproti frá Hæli Mm.: IS1991284371 Irpa frá Skíðbakka I Mál (cm): 145 – 136 – 138 – 66 – 143 – 38 – 46 – 43 – 6,3 – 28,0 – 18,0 Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 7,9 Sköpulag: 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,36 Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 7,5 = 8,51 Hægt tölt: 8,5 Aðaleinkunn: 8,46 |
| IS2019287571 Fylking frá Austurási Örmerki: 352098100092240 Litur: 45200 Leirljós stjörnóttur Ræktandi: Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir Eigandi: Austurás hestar ehf., Páll Stefánsson F.: IS2011187105 Draupnir frá Stuðlum Ff.: IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi Fm.: IS1996287667 Þerna frá Arnarhóli M.: IS2001287613 Ópera frá Nýjabæ Mf.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum Mm.: IS1988287613 Fiðla frá Nýjabæ Mál (cm): 145 – 133 – 138 – 65 – 142 – 37 – 48 – 44 – 6,4 – 27,5 – 17,5 Hófa mál: V.fr.: 9,3 – V.a.: 8,8 Sköpulag: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,54 Hæfileikar: 9,5 – 8,5 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 7,5 = 8,35 Hægt tölt: 9,0 Aðaleinkunn: 8,42 |
|
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars
Elísabet efst í A flokki ungmenna