Ásmundur og Hlökk toppa sig
Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði Mynd: Freydís Bergsdóttir
Þau Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði virðast takmarkalaus en þau bættu þeirra eigið met þegar þau hlutu einkunnina 9,37 eftir forkeppni í tölti. Frá einum dómara fengu þau nærri fullt hús stiga, 10 fyrir hægt og greitt tölt og 9.5 fyrir hraðabreytingar.
Á eftir þeim eru Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti með 8,77 í einkunn en þeir Jakob og Ásmundur háðu einvíg á Íslandsmótinu þar sem Jakob og Skarpur enduðu með meteinkunnina 9.61 í úrslitunum og titil í höfn.
Það verður spennandi að sjá hvað þeir félagar gera í A úrslitunum á föstudag.
Þriðja inn í úrslit er Brynja Kristinsdóttir á Sunnu frá Haukagili á Hvítársíðu með 8,33 í einkunn en það er alltaf gaman að horfa á þær tvær í brautinni.
Hér fyrir neðan koma niðurstöðurnar úr forkeppninni
Tölt T1 – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 9,37
2 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 8,77
3 Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu 8,33
4 Jóhanna Margrét Snorradóttir Orri frá Sámsstöðum 8,13
5 Hanna Rún Ingibergsdóttir Hvarmur frá Brautarholti 7,97
6 Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka 7,50
7-8 Viðar Ingólfsson Sókrates frá Skáney 7,43
7-8 Sara Sigurbjörnsdóttir Dísa frá Syðra-Holti 7,43
9 Hinrik Bragason Hugur frá Hólabaki 7,33
10 Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli 7,23
11 Ævar Örn Guðjónsson Lilja frá Eystri-Hól 7,17
12-13 Viðar Ingólfsson Stilla frá Kvíarhóli 7,13
12-13 Kristín Lárusdóttir Stígur frá Hörgslandi II 7,13
14 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 7,07
15-16 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Jökull frá Þingbrekku 6,93
15-16 Eik Elvarsdóttir Hallveig frá Holtabrún 6,93
17 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi 6,90
18 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 6,83
19 Jóhann Kristinn Ragnarsson Eiðfaxi frá Lækjarbotnum 6,77
20 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Þór frá Hekluflötum 6,47
21 Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum 6,27
22 Kristín Lárusdóttir Perla frá Laugardælum 6,23
23-24 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 0,00
23-24 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti 0,00
Ásmundur og Hlökk toppa sig
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars