Þriðji þáttur af Líflands stofunni
Næstu daga munum við á Eiðfaxa í samstarfi við Lífland vera með samantektarþætti í lok dags á Landsmóti Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Bjarki Sigurðsson, Hjörvar Ágústsson og Hulda G. Geirsdóttur ásamt Sigrúnu Högna Tómasdóttur.
Í kvöld ræddi Hulda við Gabríel Liljendahl Friðfinnsson, Eik Elvarsdóttir og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sem eru í efstu sætum í unglinga- og ungmennaflokki. Einnig spjallaði hún stuttlega við Ásmund Erni Snorrason en hann og Askur frá Holtsmúla eru efstir eftir milliriðla í A flokki.
Arnar Bjarki tók hrossaræktendurna Olil Amble, Berg Jónsson og Ársæl Jónsson tali og spjallaði við Jakob Svavar Sigurðsson sem sýndi Safír frá Laugardælum í meteinkunn á kynbótabrautinni í gær.
Horfðu á þáttinn á EiðfaxaTV eða hér fyrir neðan
Þriðji þáttur af Líflands stofunni
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars