Úrslit, verðlaunaafhengingar og ræktunarbú
Spáin segir að það verði brakandi blíða í Hjaltadalnum um helgina. Allir að koma og horfa á gæðingana og hitta skemmtilegt fólk á Landsmóti. Mynd: Landsmót
Næst síðasti dagurinn á Landsmóti og nóg framundan. Dagurinn hefst núna kl. 10:00 á B úrslitum í ungmennaflokki, B flokki áhugamanna og síðan B flokki.
Eftir hádegi eru verðlaunaafhendingar kynbótahrossa. Eftir þeim úrslit í A flokki ungmenna og A flokki. Um kvöldið er síðan rúsínan í pylsuendanum 100 m. skeið, sýning ræktunarbúa og A úrslit í tölti.
Föstudagur 10. júlí
10:00 B-flokkur ungmenna B-úrslit
10:30 B-flokkur áhugamanna B-úrslit
11:00 B-flokkur B-úrslit
11:45 Matarhlé
13:00 Verðlaunaafhending hryssur
14:30 Hlé
14:50 Verðlaunaafhending stóðhestar
16:20 Hlé
16:40 A-flokkur ungmenna B-úrslit
17:25 A-flokkur B-úrslit
18:15 Matarhlé
19:15 100m skeið
20:15 Sýning ræktunarbúa
21:30 Tölt T1 A-úrslit
22:00 Dagskrárlok
Úrslit, verðlaunaafhengingar og ræktunarbú
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars