Íslenskir hestar í Ástralíu-

  • 15. nóvember 2011
  • Fréttir
Íslenskir hestar í Ástralíu-

Íslenski hesturinn hefur náð góðri fótfestu í Ástralíu en þar eru nú um 100 hross. Það er ekki síst einni fjölskyldu að þakka, en rúmlega sjötíu hross er í eigu Haldane fjölskyldunnar í Viktoríuríki.

Í ástralska fréttablaðinu Weekly times er veglegt viðtal við Amy Haldane, sem sér um ræktun og þjálfun hrossanna með systur sinni.

Í greininni kemur fram að íslenski hesturinn hafi fyrst verið fluttur til Ástralíu árið 1863 en ekkert sé vitað um afdrif þeirra. Þegar Clyde Haldane fór til Danmörku árið 1995 í þeim tilgangi að kaupa buffalla kom hann auga á íslenskan hest. Hann heillaðist af hestinum og keypti níu hross og flutti heim sem burðarjálka.

Þegar Clyde lést tók bróðir hans og fjölskylda við smáhestahjörðinni. Systurnar Amy og Thea hafa tekið að sér ummönnun hestanna og hafa unnið ötullega að ræktun og þjálfun þeirra. Samkvæmt Worldfeng eru stóðhestarnir áberandi Galdur frá Dæli og Tandri von Roetgen ættferður íslenska hestastofnsins í Ástralíu. Tandri er þýskfæddur undan Andvarasyni en Galdur er undan Galsa frá Sauðárkróki og Brúnku frá Syðri-Hofdölum.  Báðir eru þeir ósýndir. Á síðasta ári festi fjölskyldan kaup á stóðhestinu, Hauki frá Stuðlum, undan Dyn frá Hvammi og Þernu frá Arnarhóli.

Amy og Thea halda úti veglegri heimasíðu – Haldane Icelandic Horses-  þar sem þær  kynna hestakynið og starfsemi sína. Þær eru greinilega dugnaðarforkar og frábærir talsmenn hestsins, þjálfa þá og selja, sýna þá á stórum hrossasýningum, halda kynningar á búgarði sínum (sjá meðfylgjandi myndband), bjóða upp á ferðir og reiðtúra svo eitthvað sé nefnt.

Frábært!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link