Landsmót „Gaman að upplifa að keppa á svona stóru móti“

  • 10. júlí 2026
  • Fréttir
Fyrsti Færeyingurinn til að keppa á Landsmóti hestamanna

Færeyingurinn Yrsa Halsdóttir Djurhuus keppti í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna og samkvæmt Ríðisamband Føroya er hún fyrsti Færeyingurinn til að keppa á Landsmóti.

Yrsa er 16 ára gömul og fór í starfskynningu í níunda bekk til Súsönnu Sand Ólafsdóttur og þá var ekki aftur snúið.

„Hún kom til mín aftur í páskafríinu og svo í sumarfríinu og er núna komin með lögheimili og kennitölu svo hún er ekkert að fara héðan aftur,“ segir Súsanna Sand og bætir við að það séu ekki nógu margir íslenskir hestar í Færeyjum fyrir hana.

Yrsa keppir á hestinum Ljúf frá Skógarnesi en þau fóru í úrtöku hjá hestamannafélaginu Herði þar sem þau hlutu 8,46 í einkunn.

„Það gekk ágætlega. Hann var mjög góður á brokki en kannski ekki alveg nógu góður á tölti. Þetta var samt mjög skemmtilegt. Gaman að upplifa að keppa á svona stóru móti og ríða fyrir framan svona marga áhorfendur,“ segir Yrsa sem ætlar sér að halda áfram að vinna við hesta og vonar í framtíðinni að komast í Háskólann á Hólum.

Yrsa Hallsdóttir Djurhuus og Ljúfur frá Skógarnesi Mynd: Ásta Björk

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link