Íbishóll vinsælasta ræktunarbúið
Frá ræktunarbússýningu Íbishóls í gær Mynd: Bert Collet
Sýningar ræktunarbú hafa skipað heiðursess á Landsmótum. Í gærkvöldi voru sýningar frá 12 hrossaræktarbúum og bauðst áhorfendum að kjósa sitt uppáhalds bú á HorseDay appinu.
Komið er í ljós hvaða ræktunarbú var valið besta ræktunarbúið af áhorfendum en það er Íbishóll.
- Íbishóll 25.3%
- Garðshorn á Þelamörk 12.8%
- Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir 10.7%
- Efri-Fitjar 8%
- Þúfur 5.1%
„Öll hrossin sem koma fram fyrir hönd Íbishóls eru útaf Ósk frá Íbishóli sem er undan fyrstu ræktunarhryssunni henni Gnótt frá Ytra-Skörðugili.“
Hrossin sem komu fram voru:
- Silkidrengur frá Íbishóli, knapi Magnús Bragi Magnússon
- Óskhyggja frá Íbishóli, knapi María Ósk Óskarsdóttir
- Seytla frá Íbishóli, knapi Jón Ársæll Bergmann
- Óskamey frá Íbishóli, knapi Álfheiður Þóra Ágústsdóttir
- Höfðingi frá Íbishóli, knapi Agnar Þór Magnússon
- Fótur frá Íbishóli, knapi Jón Bjarni Þorvarðarson
- Jósteinn frá Íbishóli, knapi Védís Huld Sigurðardóttir
- Birta frá Íbishóli, knapi Hekla Rán Hannesdóttir
- Sólbjartur frá Íbishóli, knapi Guðmar Freyr Magnússon
- Flygill frá Íbishóli, knapi Glódís Rún Sigurðardóttir
- Gljásteinn frá Íbishóli, knapi Sigurður Heiðar Birgisson
- Spekingur frá Íbishóli, knapi Daníel Gunnarsson
- Píla frá Íbishóli, knapi Jóhann Birgir Magnússon
- Sólrisinn frá Íbishóli, knapi Konráð Valur Sveinsson
Íbishóll vinsælasta ræktunarbúið
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars