Landsmót Ásmundur hlaut FT fjöður

  • 11. júlí 2026
  • Fréttir
Verðlauna afhending á Landsmóti

FT Fjöðrin er veitt af Félagi Tamningamanna fyrir ákveðna sýningu á einum hesti sem
uppfyllir eftirfarandi skilyrði:

Reiðfærni þess sem FT fjöðrina hlýtur skal einkennast af léttleika, lipurð og samspili þar
sem saman fer einstök útgeislun og jafnvægi. Knapi og hestur ljóma af heilbrigði, krafti
og gleði. Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests. Hesturinn sé sjálfberandi,
sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.

„Ásmundur Ernir Snorrason hlýtur FT-fjöðrina fyrir glæsilega sýningu sína á gæðingnum Hlökk frá Strandarhöfði í tölti meistara, þar sem þau fóru sannarlega á kostum. Einstök útgeislun, kraftur og fas einkennir þetta par. Hlökk er viljagammur sem leggur sig alla fram í verkefnið með knapa sínum og er þeirra  samspil frábært. Saman spila þau á völlinn sitt leikandi lag með kraftmikilli og faglegri sýningu.“

Innilega til hamingju Ási með FT fjöðrina

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link